fbpx
Sunnudagur 24.nóvember 2024
Fréttir

Lára segir Grindvíkinga þurfa svör við þessum fimm spurningum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 16. janúar 2024 12:53

Lára Ómarsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef verið í samskiptum við þónokkra Grindvíkinga sem mörg hver eru við það að bugast. Skiljanlega. Það er erfitt að lifa í slíkri óvissu og vita ekki hvað verður eða hvað gerist næst, geta ekkert skipulagt sitt líf.“

Þetta segir fjölmiðlakonan Lára Ómarsdóttir á Facebook-síðu sinni.

Lára birtir í pistli sínum nokkrar spurningar sem hún vill gjarnan koma á framfæri til yfirvalda fyrir hönd þeirra sem hún hefur rætt við.

Í fyrsta lagi spyr hún hvenær Grindvíkingar fá að huga að eigum sínum.

„Í Vestmannaeyjagosinu var fljótlega eftir að gos hófst farið í að bjarga eigum fólks og innbúi. Eins fengu fyrirtæki að bjarga verðmætum. Þá fékk fólk að panta björgun og inn í bæinn fór fólk og sótti það sem óskað var eftir að yrði sótt. Þannig tókst að bjarga miklu. Er ómögulegt að gera slíkt hið sama nú og ef svo er, hvers vegna?“

Í öðru lagi spyr Lára hvort allur bærinn sé ónýtur.

„Við sjáum bara myndir af eyðileggingu í fjölmiðlum. Talað er um að bærinn hafi gliðnað um næstum einn og hálfan metra og að hættulegt sé að vera þar vegna þess að sprungur geti opnað fyrirvaralaust. Á þetta við um allan bæinn eða bara hluta hans? Eru einhver heil hús eða heilar götur í Grindavík? Ef svo er, hvar er óhætt að vera og hvar ekki? Má þá fólk sem þar býr fljótlega fara heim og huga að eignum sínum?“

Lára spyr svo í þriðja lagi hver staðan er á hafnarsvæðinu.

„Sjávarútvegur er stór atvinnugrein í Grindavík og lífæð bæjarins er höfnin. Er hún heil? Verður hægt að stunda sjávarútveg þarna aftur og ef svo er, hvenær má búast við því að það verði?“

Þá veltir hún fyrir sér hvað stjórnvöld ætla að gera.

„Mörg vilja ekki snúa aftur til Grindavíkur jafnvel þótt hús þeirra séu heil. Ætla stjórnvöld að kaupa öll hús í bænum eða bjóða Grindvíkingum sem ekki vilja snúa aftur einhverja aðstoð? Í hvaða formi verður sú aðstoð og hvenær má vænta svara frá stjórnvöldum varðandi það?“

Loks spyr Lára hvar fólk eigi að vinna í framtíðinni.

„Fjöldi Grindvíkinga starfar í bænum. Nú þegar ekki er að hægt að vinna þar spyrja sum sig hvort þau eigi að leita að annarri vinnu eða bíða og sjá til með það. Óvissan er vond.“

Lára segir að þó ekki sé hægt að svara þessum spurningum núna þá geta stjórnvöld reynt að fullvissa Grindvíkinga um að þeim verði hjálpað, ástandið sé tímabundið og að stjórnvöld ætli, sama hvað, að aðstoða öll sem þarna hafa búið. „Ég held að við sem samfélag viljum að það verði gert,“ segir hún í færslu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir Sjálfstæðisflokkinn víst boða skattalækkun á þá efnamestu – „Glittir líka hressilega í undirlægjuhátt Sjálfstæðismanna“

Segir Sjálfstæðisflokkinn víst boða skattalækkun á þá efnamestu – „Glittir líka hressilega í undirlægjuhátt Sjálfstæðismanna“
Fréttir
Í gær

„Krafan um bann við laxeldi er krafa um að svipta fólki vinnunni, voninni og eignunum“

„Krafan um bann við laxeldi er krafa um að svipta fólki vinnunni, voninni og eignunum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maður á fimmtugsaldri með gífurlegt magn af þýfi úrskurðaður í gæsluvarðhald

Maður á fimmtugsaldri með gífurlegt magn af þýfi úrskurðaður í gæsluvarðhald
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gervihnattarmyndir varpa ljósi á leynimakk Rússa og Norður-Kóreumanna

Gervihnattarmyndir varpa ljósi á leynimakk Rússa og Norður-Kóreumanna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mannskæður hernaður Rússa í Úkraínu – „Við nálgumst tölur eins og voru í síðari heimsstyrjöldinni“

Mannskæður hernaður Rússa í Úkraínu – „Við nálgumst tölur eins og voru í síðari heimsstyrjöldinni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sýknaður að hluta eftir bílaeltingaleik í Kjós – Þótti ekki líklegur til stórræða á 19 ára gömlum bíl

Sýknaður að hluta eftir bílaeltingaleik í Kjós – Þótti ekki líklegur til stórræða á 19 ára gömlum bíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorvaldur kaus utan kjörfundar en grunar að maðkur sé í mysunni – „Hvað ætli Hæstiréttur myndi segja um það kæmi málið til kasta hans?“

Þorvaldur kaus utan kjörfundar en grunar að maðkur sé í mysunni – „Hvað ætli Hæstiréttur myndi segja um það kæmi málið til kasta hans?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvar er Svanberg? – Telur elskhuga eiginkonu Geirfinns hafa lykilupplýsingar í málinu – Hefur farið huldu höfði í Þýskalandi

Hvar er Svanberg? – Telur elskhuga eiginkonu Geirfinns hafa lykilupplýsingar í málinu – Hefur farið huldu höfði í Þýskalandi