Almannavarnir voru rétt í þessu að gefa viðbragðsaðilum og öðrum fyrirmæli um að yfirgefa Grindavík strax þar sem talið er að kvika sé komin undir bæinn.
RÚV skýrði frá þessu og hefur eftir Hjördísi Guðmundsdóttur, hjá almannavörnum, að þær hafi rétt í þessu fengið þær upplýsingar frá vísindamönnum að kvika virðist vera komin undir bæinn.