„Aðstæður í sprungunni eru mjög ótryggar og það er engan veginn forsvararanlegt að senda sigmenn niður í sprunguna. Við erum að tala um sprungu sem er sirka 40 metrar á dýpt. Niðurstaðan er að það er og verður ekki hægt að sinna þarna björgunarstörfum. Þannig að leit hefur því miður verið hætt,“ sagði Úlfar.
Úlfar sagði að lögregla hefði verið í samskiptum við fjölskyldu mannsins og hugur hennar sé hjá henni.
Aðspurður sagði Úlfar að engin ummerki hefðu fundist um manninn ofan í sprungunni.
Úlfar sagði að slysið væri hörmulegt og svæðið væri ótryggt. „Þessar sprungur eru stórhættulegar.“
Þegar Úlfar var spurður að því hvort til greina kæmi að loka bænum, sagði hann: „Það kemur allt til greina,“ sagði hann en tók fram að engin ákvörðun þar að lútandi hefði verið tekin.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, sagði að ákvörðun um að hætta leit væri þungbær og viðbragðsaðilar hefðu ekki viljað neitt meira en að finna manninn.