Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir stöðufærsla lögreglunnar á Norðurlandi eystra, þar sem tilkynnt var um niðurfellingu rannsóknar í svokölluðu símastulds- og byrlunarmáli, sé stórfurðuleg og fordæmalaus. Þar reki lögreglan með ítarlegum hætti rannsókn málsins og lýsir afstöðu sinni til sakargifta, en slíkt geti ekki talist sæmandi tjáning fyrir lögreglu.
Hún skrifar í Facebook-færslu:
„Ef vinnubrögð lögreglunnar í þessu máli hefðu verið á þann veg að ásættanlegt mætti telja í réttarríki á borð við Ísland, hefðu blaðamenn í fyrsta lagi aldrei verið kallaðir til yfirheyrslu eða fengið stöðu sakbornings, í öðru lagi hefði rannsókn þess aldrei tekið þrjú og hálft ár og í þriðja lagi hefði lögreglan ekki birt ítarlega stöðufærslu á samfélagsmiðlinum Facebook vegna ákvörðunar sinnar um að fella niður rannsókn málsins. Sú ákvörðun er í besta falli stórfurðuleg og í raun fordæmalaus. Lögreglan fer þar með ítarlegum hætti í gegnum atriði í rannsókn málsins og telur ástæðu til þess að lýsa afstöðu sinni til sakarefnis sakborninga hvað varðar einkagögn sem fréttir voru birtar upp úr: „Þar er afstaða Lögreglustjóraembættisins á Norðurlandi eystra að allir sakborningar í málinu gætu hafa sýnt af sér atferli sem getur flokkast undir brot á framangreindum ákvæðum.“ Það getur varla talist lögreglu sæmandi að tjá sig með þessum hætti – eftir að órökstudd, óþörf og tilgangslaus rannsókn hennar á blaðamönnum leiðir í ljós að ekki er tilefni til þess að halda henni áfram – en það er svo sem í takt við allt annað sem lögreglan hefur aðhafst í þessu máli.“
Sigríður rekur að blaðamennirnir í máli þessu hafi þurft að standa undir alvarlegum ásökunum og jafnvel ærumeiðingum sökum rannsóknarinnar. Þó hafi ekkert í málatilbúnaði lögreglu gefið tilefni til þess að draga blaðamenn inn í málið. Blaðamenn njóti sérstakrar verndar í störfum sínum og í lögum eru gerðar undanþágur hvað varða blaðamennsku svo sem um notkun einkagagna í þágu almannahagsmuna. Auk þess minnir Sigríður á að ekkert var rangt við fréttirnar sem blaðamenn unnu upp úr gögnunum sem þeir fengu um svokallaða Skæruliðadeild Samherja. Þvert á móti hafi Samherji beðist afsökunar á framferði þessarar meintu skrímsladeildar sinnar.
Líkt og áður hefur komið fram tilkynnti lögregla um niðurfellingu rannsóknarinnar í hádeginu í gær með rúmlega þúsund orða stöðufærslu. Svo ítarleg tilkynning þykir afar óvenjuleg. Skömmu eftir að færslan birtist slökkti lögreglan á Norðurlandi eystra á athugasemdum við færsluna.