Sanna lýsir þessu í viðtali við Morgunblaðið í dag.
Samkvæmt niðurstöðum könnunar Maskínu í ágúst síðastliðnum er Sanna sá borgarfulltrúi sem hefur staðið sig best á kjörtímabilinu. Í könnuninni nefndu 18 prósent svarenda að Sanna hefði staðið sig best en þar á eftir komu Dagur B. Eggertsson, Hildur Björnsdóttir, Einar Þorsteinsson og Kolbrún Baldursdóttir.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi í Reykjavík – Sanna Magdalena orðin vinsælli en Dagur
Sanna, sem situr í kosningastjórn Sósíalistaflokksins, segir að ekki sé búið að ákveða hvernig valið verður á framboðslista fyrir komandi þingkosningar. Margir hafi lýst yfir áhuga á að taka sæti.
Um helstu áherslumál hennar nefnir Sanna húsnæðismálin sem séu í miklum ólestri. Þau séu grunnurinn að velferð, hvort sem litið er til leigumarkaðar eða fyrstu kaupenda. Þá þurfi að leiðrétta skattkerfið og tryggja að peningarnir séu sóttir til þeirra sem eiga nóg en er undanþegnir því að greiða til samfélagsins.