Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra sagði í viðtali við TV2 í Danmörku um helgina að þetta væri raunin hér á landi.
„Við erum að sjá vísbendingar um að það séu kannski meiri tengsl við erlenda glæpahópa en við höfum gert okkur grein fyrir og það er bara gríðarlega mikilvægt að við höldum vöku okkar hvað það varðar,“ segir Guðrún við Morgunblaðið í dag.
Runólfur Þórhallsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningadeild ríkislögreglustjóra, sagði í viðtali við mbl.is í gærkvöldi að málið sem Guðrún vísaði til varði atvik þegar kveikt var í bíl lögreglumanns fyrir utan heimili hans í ágúst í fyrra. Fram kom í máli Runólfs að gerendur í því máli hefðu unnið eftir pöntun frá sænsku glæpagengi. Runólfur ræddi einnig stöðu mála í fréttum RÚV í gærkvöldi.
„Málið sem við upplýstum dómsmálaráðherra um var þannig að verknaðurinn var í raun pantaður af glæpahópi í netheimum. Þá ferðast menn oft yfir landamærin í þeim tilgangi að fremja afbrotið,“ sagði Runólfur við mbl.is og bætti við að pöntunin hafi komið frá Kronogård-genginu Trollhattan. Í umfjöllun mbl.is kom fram að um sé að ræða fjölþjóðlegt gengi en því hafi verið stýrt af Palestínumönnum.
„Því er kannski ósanngjarnt að segja að þetta komi frá Svíþjóð. Þetta er starfsemi sem samanstendur af ólíkum þjóðernum og er allt í kringum okkur,“ sagði Runólfur við mbl.is
Guðrún segist hafa miklar áhyggjur af þessari þróun. „Við teljum svo vera að erlendir glæpahópar og glæpagengi séu að reyna að ná meiri fótfestu hér á landi.“