fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Fréttir

Látin hreyfihömluð kona fannst í ruslahaug – „Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera, ég setti hana út fyrir þar sem ruslið var“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 21. september 2024 19:00

Randall fannst í Waunarlwydd hverfinu í Swansea.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bresk kona á fimmtugsaldri sem var í hjólastól týndist og fannst látin tveimur vikum síðar undir ruslapokum í garði. Karlmaður var handtekinn en síðar sleppt þar sem rannsókn leiddi ekki í ljós að ofbeldi hefði verið beitt. Hann setti konuna hins vegar í hauginn.

Breska blaðið The Sun greinir frá þessu eftir að rannsóknargögn í málinu voru opinberuð.

Konan hét Kelly Louise Randall, var 45 ára gömul og þriggja barna móðir búsett í borginni Swansea í Wales. Randall var í hjólastól eftir að fæturnir höfðu verið fjarlægðir með aðgerð. Hún sást síðast lifandi 3. maí árið 2022 og tveimur dögum síðar var auglýst eftir henni.

Grunsamlegur haugur

Ekkert spurðist til Randall í tvær vikur en þá barst lögreglu spurnir af því að hjólastóll hefði sést fyrir utan íbúð í tilteknu hverfi borgarinnar. Eigandi hússins hleypti lögreglunni inn og þá fannst hjólastóll í einu svefnherberginu. Blóðslettur fundust einnig á rúminu, dýnunni og sængurfötunum. Randall fannst hins vegar sjálf ekki inni í húsinu.

Stór ruslahaugur í bakgarði hússins fangaði athygli lögreglunnar og þegar að var gáð sáust föt, skór og það sem leit út fyrir að vera handleggur í haugnum. Við nánari athugun kom lík Randall í ljós. Var eigandi hússins, Alfred Millman, handtekinn á staðnum.

Færði líkið með bandi

Seinna var Millman hins vegar sleppt þegar rannsókn sýndi að ekki væru líkur á að Randall hefði verið myrt. Hins vegar var heldur ekki hægt að sýna fram á að dauði hennar hefði verið af náttúrulegum orsökum. Ekki var hægt að sýna fram á með óyggjandi hætti hvað hafði gerst. Millman hafði hins vegar fært lík hennar til með reipi og þvottasnúru.

„Hún kom stundum og fékk sér te og þreif fyrir mig,“ sagði Millman í yfirheyrslu lögreglunnar. Hann sagðist hafa fundið líkið undir sænginni þegar hann var að leita að sígarettubréfum. „Hún lá á hliðinni. Andlitið á henni var fjólublátt. Ég reyndi að þrífa andlitið. Ég vissi að hún væri dáin þar sem hún var svo köld. Ég missti stjórnina. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Ég setti hana út fyrir þar sem ruslið var. Ég var hræddur. Ég hefði átt að hringja á lögregluna. En ég missti stjórnina. Ég hafði ekkert að gera með dauða hennar. Ég vissi að hún átti í fíkniefnavanda.“

Í slæmu andlegu ástandi

Fram kom að Randall hafði glímt við eiturlyfjafíkn og að hún hefði verið að nota lyf þegar hún lést. Einnig hafði hún glímt við þunglyndi og upp höfðu komið tilvik þar sem hún hafði skaðað sig sjálfa. Maki hennar til 25 ára vitnaði um að þau hefðu bæði notað heróín og valíum.

Daginn sem Randall hvarf hafði verið farið með hana á spítala eftir að hún féll úr hjólastólnum sínum. Hún var í mjög slæmu ásigkomulagi andlega og talaði um að fleygja sér úr stólnum í veg fyrir bíla.

Óljós dánarorsök

Réttarmeinafræðingur gat ekki sagt nákvæmlega hvaða dag Randall lést. Það hefði getað verið einhvern tímann á tímabilinu 3. til 16 maí. Hann fann engin brot á höfuðkúpunni eða merki um heilablóðfall eða hjartaáfall.

Í blóðinu fannst áfengi, morfín, amfetamín, kannabis og tvö önnur fíkniefni. Gat réttarmeinafræðingurinn ekki útilokað að þessi kokteill af efnum hefði haft sitt að segja um andlátið þó að ekki væri beinlínis hægt að fullyrða það. Ekkert benti hins vegar til þess að önnur manneskja hefði valdið andlátinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni á árunum 2003 til 2007

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni á árunum 2003 til 2007
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtahækkun Íslandsbanka þýðir fyrir 45 milljóna króna lán

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtahækkun Íslandsbanka þýðir fyrir 45 milljóna króna lán
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sigurður Ingi skýtur hugmynd Miðflokksins í kaf: „Já, þetta er vitlaus hugmynd“

Sigurður Ingi skýtur hugmynd Miðflokksins í kaf: „Já, þetta er vitlaus hugmynd“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Gosið fór yfir Grindavíkurveg í nótt – Fer 300 metra á klukkustund

Gosið fór yfir Grindavíkurveg í nótt – Fer 300 metra á klukkustund
Fréttir
Í gær

Ákærð fyrir stórfellda líkamsárás á starfsmann Vinakots

Ákærð fyrir stórfellda líkamsárás á starfsmann Vinakots
Fréttir
Í gær

Salka Sól sendir borgarstjóra væna pillu – „Þú situr bara víst við þetta samningsborð Einar!“

Salka Sól sendir borgarstjóra væna pillu – „Þú situr bara víst við þetta samningsborð Einar!“
Fréttir
Í gær

Nýju gögnin í Geirfinnsmálinu eiga að fara til Keflavíkur – „Þarna var sáð fræi sem varð að mesta réttarmorði Íslandssögunnar“

Nýju gögnin í Geirfinnsmálinu eiga að fara til Keflavíkur – „Þarna var sáð fræi sem varð að mesta réttarmorði Íslandssögunnar“
Fréttir
Í gær

Enn fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt

Enn fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt