Fulltrúar frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum munu ekki fara til Moskvu í október og ráðleggja stjórnvöldum í Rússlandi um efnahagsmál eins og til stóð. Níu ríki, þar á meðal Ísland, höfðu mótmælt áætlununum harðlega.
DV greindi frá málinu síðastliðinn föstudag. Það er að í fyrsta skipti frá innrásinni í Úkraínu hugðist Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn senda ráðgjafa til Rússlands eins og hann gerði á hverju ári fram að árásinni. En um er að ræða þjónustu sem sjóðurinn veitir öllum aðildarríkjum, samkvæmt fjórðu grein stofnsáttmálans.
Sigurður Ingi Jóhannsson, var á meðal níu fjármálaráðherra Evrópuríkja sem mótmæltu ákvörðuninni harðlega. Það er vegna þess að sjóðurinn væri með þessu óbeint að aðstoða Rússa við að halda úti sínum stríðsrekstri í Úkraínu. Auk Íslands mótmæltu fjármálaráðherrar allra hinna Norðurlandanna, Eystrasaltslandanna og Póllands.
Vegna þessa þrýstings hefur Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn ákveðið að fresta heimsóknum til Rússlands um óákveðinn tíma. Samkvæmt rússneska ríkismiðlinum TASS upplýsti Alexei Mozhin, fulltrúi Rússlands hjá sjóðnum, rússnesk yfirvöld um þetta. Ástæðan sem sjóðurinn gefur upp er hins vegar ekki pólitískur þrýstingur heldur að það skorti „tæknilegan undirbúning“ til þess að geta sinnt verkefninu.