Synirnir eru geymdir í einni af höllum Pútíns og er öryggisgæslan þar í hámarki að sögn rússnesks stjórnarandstæðings.
„Húrra! Loksins drengur!“ Ivan Putin hefur oft sagt kennurum og lífvörðum söguna af gleðiviðbrögðum föður síns, Vladímír Pútíns, þegar hann fæddist en hann er elsti sonur forsetans.
En það breytir því ekki að Pútín eldri hefur aldreið nefnt syni sína einu orði né viðurkennt að hann eigi yfirhöfuð syni.
En ný rannsókn rússneska stjórnarandstöðumiðilsins The Dossier Center varpar ljósi á þessa tvo syni Pútíns, sem hann reynir að halda leyndum.
Synirnir heita Ivan Putin og Vladmir Putin yngri. Ivan er sagður heltekinn af Disney og saman eiga þeir mikið Lego-safn og spila mikið í Ipad. Við að lesa þetta er eiginlega hægt að gera sér í hugarlund að uppeldi þeirra sé eins og hjá svo mörgum öðrum börnum á sama aldri. En við lestur umfjöllunar The Dossier Center þá koma brestir í þá mynd.
Ivan fæddist í Lugano í Sviss 2015 en Putin yngri í Moskvu 2019.
Þeir eru með einkaþjálfara í sundi og fimleikum sem er kannski engin furða því móðir þeirra vann til tvennra verðlauna á Ólympíuleikum og 14 á heimsmeistaramótum.
Móðir þeirra, Alina, er 41 árs. Kremlverjar vilja ekki viðurkenna að hún og Pútín eigi í ástarsambandi.
Hún býr með drengina í einni af höllum Pútíns. Hún stendur við Valdajvatnið sem er mitt á milli Sankti Pétursborgar og Moskvu.
Ivan og Pútín eldri spila að sögn oft íshokkí á einkaíshokkívelli hallarinnar.
Barnapíur og kennarar drengjanna eru ráðnir í gegnum heimasíðuna „English Nanny“. Nú síðast var að sögn leitað að enskukennara fyrir drengina. Í auglýsingunni var tekið fram að fjölskyldan „lifi í einangrun“ nærri Sankti Pétursborg. Meðal þeirra krafna sem eru gerðar til kennarans er að hann þarf að vera reiðubúinn til að gangast undir læknisskoðun og „starfa í einangrun“ og að „mega ekki yfirgefa svæði vinnuveitandans“.
Auk kennara, sem búa í höllinni, þá eru fjórar barnapíur þar og einkakokkar.
Drengirnir hafa tvo hesta til umráða, kanínur og hund og eru tveir hundapassarar sem sjá um hann.
Í einstaka tilfellum fá börn að heimsækja þá en þau þurfa þá fyrst að fara í tveggja vikna einangrun og því er það aðallega í fríum þau koma í heimsókn. Þetta er sama regla og Pútín viðhefur fyrir sjálfan sig en hann tók þetta upp í heimsfaraldri kórónuveirunnar.
Pútín á tvær dætur með Lyudmila Putina en þau skildu 2013. Þær eru báðar á fertugsaldri og var haldið utan kastljóss fjölmiðla þar til á þessu ári en þá fóru þær að sjást opinberlega.
Pútín hefur sjálfur sagt að hann ræði aldrei fjölskyldumál sín við aðra og hann nefnir hana aldrei. En aðrir hafa nefnt dæturnar á nafn og Vesturlönd hafa sett viðskiptabann á þær.