Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu í dag.
Ólöf Birna Jensen, fulltrúi hverfisráðs Súgandafjarðar, er ábyrgðarmaður listans en á föstudag varð bruni í rútu skammt frá göngunum og hefði væntanlega ekki þurft að spyrja að leikslokum hefði eldurinn komið upp inni í göngunum.
Ólöf segir við Morgunblaðið að hugsanlega sé fyrirhugað að gera göngin tvíbreið til Flateyrar en ekki til Suðureyrar. Það hefur íbúum bæjarfélagsins ekki þótt nógu öruggt og bendir Ólöf á að ómögulegt sé að snúa við á einbreiða kaflanum nema þá litlir fólksbílar.
„Þessar rútur, þær voru fjórar ásamt þessari sem kviknaði í. Við erum að tala um tvö hundruð manns sem hefðu verið fastir í göngunum og ekki getað snúið við,“ segir hún við Morgunblaðið. Þá sé staðhæft að klæðningin í göngunum sé mjög eldfim.
„Ef þessi rútubruni hefði orðið nokkrum mínútum fyrr, og þá í miðjum göngunum, hefði komið mikill reykur. Eldurinn hefði læst sig í klæðninguna. Mér sýnist að allt þetta fólk sem var í bifreiðunum þarna á eftir hefði dáið inni í göngunum,“ segir hún við Morgunblaðið þar sem nánar er fjallað um málið.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður VG, lýsti því í færslu á Facebook-síðu sinni á föstudag að hún hefði komið úr göngunum stuttu eftir slysið og þá hafi verið komin stór bílaröð hjá slysstaðnum.
„Svona atburðir ættu að vekja ráðamenn til umhugsunar um hvað hefði getað gerst ef kviknað hefði í rútunni nokkrum mínútum fyrr inn í Vestfjarðargöngum sem eru einbreið að stórum hluta og mikil rútutraffic um báða einbreiðu leggina ! Það hefði orðið algjört öngþveiti og erfitt að komast að slysstað til bjargar og baneitraður reykur frá eldinum. Vonandi vekur þetta ráðamenn til vitundar um nauðsyn þess að tvöfalda þessi báða leggi einbreiðu ganganna sem fyrst því þar er mikil slysahætta og gera þarf viðeigandi ráðstafanir.“