Að sögn lögreglu var maðurinn vistaður í fangageymslu og var vopnið, sem reyndist vera 5-tré, haldlagt. Sá sem fyrir árásinni varð hlaut minniháttar áverka í andliti en kvaðst ekki nenna að fara á slysadeild til aðhlynningar.
Í öðru máli var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna ógnandi manns í ónefndum bílakjallara. Í ljós kom að maðurinn hafði brotið framrúðu í bifreið og rænt peningum af tilkynnanda með því að hóta honum barsmíðum með flösku. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Við öryggisleit á manninum fundust ætluð fíkniefni og peningaseðlar, ætlað þýfi. Annar maður tók einnig þátt í ráninu með því að hóta tilkynnanda með hnífi, en sá var farinn af vettvangi og hefur ekki fundist.
Þá var óskað eftir aðstoðar vegna ráns þar sem átta menn réðust að einum með ofbeldi og höfðu af honum gleraugu. Árársarþoli sagði mennina hafa kýlt sig í höfuðið, dregið sig niður á jörðina og þar sparkað í bak hans og hnakka. Flestir sakborninga eru óþekktir og allir ófundnir. Árásarþola var boðið á lögreglustöð til samtals við rannsóknarlögreglumann og síðan hvattur til að leita sér heilbrigðisaðstoðar. Málið er í rannsókn.