fbpx
Fimmtudagur 29.ágúst 2024
Fréttir

Almenni Lífeyrissjóðurinn sendir kröfulýsingar rafrænt með Justikal

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 29. ágúst 2024 10:28

Sigríður Ómarsdóttir, skrifstofustjóri Almenna Lífeyrissjóðsins, og Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Justikal.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur samið við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Justikal um að nýta rafræna lausn Justikal við innheimtuferli hjá sjóðnum.

Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um ýmsar breytingar á lögum um meðferð einkamála sem tóku gildi 1.júlí síðastliðinn. Eitt megin markmið lagabreytinganna var að gera réttarvörslukerfið einfaldara, notendavænna og stuðla að jákvæðum umhverfisáhrifum, svo sem með því að skapa forsendur fyrir að draga úr ferðalögum og notkun pappírs. Auk þess var lögum um gjaldþrotaskipti breytt, sem gerir það að verkum að nú er heimilt að senda kröfulýsingar í þrotabú með stafrænum hætti.

„Við hjá Almenna lífeyrissjóðnum erum ánægð að geta nýtt okkur lausn Justikal við innheimtuferli hjá sjóðnum. Með samstarfi við Justikal tekst sjóðnum að stuðla að bæði skilvirkara og á sama tíma öruggara ferli. Framfarir af þessum toga eru mikilvægar í þeirri vegferð sem við leitumst við að fylgja, sem er að veita sjóðfélögum okkar framúrskarandi þjónustu,“ segir Sigríður Ómarsdóttir, skrifstofustjóri Almenna Lífeyrissjóðsins í tilkynningu.

,,Við erum mjög spennt að geta boðið markaðnum að nýta þjónustu okkar fyrir kröfulýsingar í þrotabú. Markaðurinn hefur tekið eiginleikanum fyrir öruggar gagnasendingar mjög vel og nýtt hann meðal annars til að birta stefnur, viðkvæm bréf, greiðsluáskoranir og fleira. Okkur hlakkar mikið til samstarfsins með Almenna lífeyrissjóðnum sérstaklega þar sem við deilum gildum um að veita okkar viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu,“ segir Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Justikal.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ferðamaður lýsir hörmungunum á Breiðamerkurjökli: „Við stóðum á nákvæmlega þessum stað“

Ferðamaður lýsir hörmungunum á Breiðamerkurjökli: „Við stóðum á nákvæmlega þessum stað“
Fréttir
Í gær

Jóhanni fyndist skynsamlegt ef Íslendingar kæmu sér upp neyðarbirgðum eins og Danir

Jóhanni fyndist skynsamlegt ef Íslendingar kæmu sér upp neyðarbirgðum eins og Danir
Fréttir
Í gær

Bíó Paradís fær Fjólublátt ljós við barinn

Bíó Paradís fær Fjólublátt ljós við barinn
Fréttir
Í gær

Móðir hefur barist í fjölda ára – Segir litla virðingu borna fyrir einstæðum foreldrum – „Hringdi í Píeta af því mig langaði bara að fara“

Móðir hefur barist í fjölda ára – Segir litla virðingu borna fyrir einstæðum foreldrum – „Hringdi í Píeta af því mig langaði bara að fara“
Fréttir
Í gær

Segir farir sínar ekki sléttar af 1818 – Fékk rukkun fyrir þjónustuna og aðra fyrir að kvarta yfir að vera rukkuð

Segir farir sínar ekki sléttar af 1818 – Fékk rukkun fyrir þjónustuna og aðra fyrir að kvarta yfir að vera rukkuð
Fréttir
Í gær

Eigendur jöklaskoðunarfyrirtækisins fjarlægja upplýsingar um sig – Segjast ekki bera ábyrgð á slysum né dauða

Eigendur jöklaskoðunarfyrirtækisins fjarlægja upplýsingar um sig – Segjast ekki bera ábyrgð á slysum né dauða