fbpx
Miðvikudagur 22.janúar 2025
Fréttir

Ferðamaður lýsir hörmungunum á Breiðamerkurjökli: „Við stóðum á nákvæmlega þessum stað“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. ágúst 2024 09:18

Frá vettvangi. Mynd/Landsbjörg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski ferðamaðurinn Scott Stevens var í íshellaskoðun á Breiðamerkurjökli ásamt tíu ára dóttur sinni þegar hið hörmulega slys varð þar síðastliðinn sunnudag. Scott telur að litlu hafi mátt muna að hann og dóttir hans lentu undir ísveggnum sem hrundi.

Í viðtali við CNN lýsir Stevens, sem er búsettur í Austin í Texas, atvikinu.

Hann segir að hann hafi meðal annars tekið myndir af dóttur sinni á leiðinni til baka úr hellinum og dottið í hug að skipta um linsu á myndavélinni sinni til að ná öðruvísi myndum. Þar sem röð var farin að myndast fyrir aftan hann hafi hann ákveðið sleppa því til að tefja ekki aðra.

„Mér fannst dónalegt af mér að láta aðra standa fyrir aftan mig meðan ég skipti um linsu þannig að ég sleppti því og við löbbuðum út,“ segir hann.

Eigendur jöklaskoðunarfyrirtækisins fjarlægja upplýsingar um sig – Segjast ekki bera ábyrgð á slysum né dauða

Hann segir að um það bil mínútu eftir að þau fóru úr hellinum hafi hann heyrt mikinn hávaða fyrir aftan sig, ísveggurinn hafði hrunið. „Ef ég hefði skipt um linsu þá væri ég 100% dáinn núna. Við stóðum á nákvæmlega þessum stað,“ segir hann.

Eins og komið hefur fram lést bandarískur ferðamaður í slysinu og slasaðist konan hans töluvert. Grunsemdir vöknuðu um að tveir ferðamenn til viðbótar væru undir ísnum en síðdegis á mánudag var leit hætt þar sem umræddir ferðamenn fóru ekki í ferðina.

Scott segir að ýmislegt hafi farið í gegnum huga hans og dóttur hans eftir slysið. „Hún er búin að hugsa mikið um að ég hefði getað dáið á meðan ég var að taka myndir af henni. Ég hef hugsað um aumingja manninn sem var þarna í fríi og eflaust á leiðinni heim til sín.“

Hann segir við CNN að tveir hópar hafi verið nær samtímis í hellinum, en hann var í fyrri hópnum og maðurinn sem lést í seinni hópnum. Hóparnir ferðuðust engu að síður saman en voru með mismunandi leiðsögumenn. Þegar ísveggurinn hrundi segist Scott hafa verið að tala við leiðsögumanninn úr sínum hóp.

„Hann horfði á mig og ég horfði á hann. Svipurinn á okkur báðum var á þá leið að þetta væri ekki gott.“ Hann segir að hann og leiðsögumaðurinn hafi drifið sig á vettvang og strax séð konu sem var augljóslega sárþjáð. Leiðsögumenn og læknir í hópnum veittu henni aðhlynningu og segir Scott að leiðsögumaðurinn sem hann hafði rætt við skömmu áður hafi verið í miklu áfalli.

„Hann var tárvotur … Hann kom aftur og það var blóð á honum, líklega úr manninum sem lést. Hinn leiðsögumaðurinn var líka eyðilagður og augljóslega í gríðarlegu áfalli.“ Scott segist síðar hafa frétt að um par hefði verið að ræða.

CNN segir frá því að bandarísk yfirvöld hafi staðfest að bandarískur karlmaður hafi látist í slysinu og bandarísk kona slasast. Sagði talsmaður bandarísku utanríkisþjónustunnar að yfirvöld væru tilbúin að veita fjölskyldu fólksins aðstoð vegna slyssins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Ökukennari segir illa komið fram við eldri ökumenn: „Að mínu mati al­gjör­lega út í hött“

Ökukennari segir illa komið fram við eldri ökumenn: „Að mínu mati al­gjör­lega út í hött“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Dagur kveður borgarstjórn eftir nær aldarfjórðung – „Ég elska Reykjavík“

Dagur kveður borgarstjórn eftir nær aldarfjórðung – „Ég elska Reykjavík“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Illugi ómyrkur í máli – „Þetta var Hitlers-kveðja og ekkert annað“

Illugi ómyrkur í máli – „Þetta var Hitlers-kveðja og ekkert annað“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Guðmundur segir að ósanngjörn umfjöllun RÚV um Trump geti skaðað samskipti við Bandaríkjamenn – „Þessu verður að linna“

Guðmundur segir að ósanngjörn umfjöllun RÚV um Trump geti skaðað samskipti við Bandaríkjamenn – „Þessu verður að linna“
Fréttir
Í gær

Kæru vegna sjókvíaeldis í Seyðisfirði vísað frá

Kæru vegna sjókvíaeldis í Seyðisfirði vísað frá
Fréttir
Í gær

Höggvinn með exi á A. Hansen – Svaraði fyrir sig með hnefunum 20 árum síðar á Castello

Höggvinn með exi á A. Hansen – Svaraði fyrir sig með hnefunum 20 árum síðar á Castello
Fréttir
Í gær

Maður á sextugsaldri misþyrmdi lögreglumanni í Þarabakka

Maður á sextugsaldri misþyrmdi lögreglumanni í Þarabakka
Fréttir
Í gær

Guðmunda þekkir það vel að vera aftast í röðinni og gleymast – „Ég lifi það ekki af að bíða svo lengi, henni varð á að hlæja“

Guðmunda þekkir það vel að vera aftast í röðinni og gleymast – „Ég lifi það ekki af að bíða svo lengi, henni varð á að hlæja“
Fréttir
Í gær

Dóri DNA segist með Mosfellsbæ á heilanum – „Þarna er hugsað stórt og ég elska þegar það er hugsað stórt“

Dóri DNA segist með Mosfellsbæ á heilanum – „Þarna er hugsað stórt og ég elska þegar það er hugsað stórt“