fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Fréttir

Hnífstunguárás á Menningarnótt – Rannsókn miðar vel

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 27. ágúst 2024 14:30

Lögreglan að störfum. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í miðborginni á laugardagskvöld miðar vel. 

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að rannsóknin er umfangsmikil og hefur verið í algjörum forgangi hjá embættinu frá því að málið kom upp. Lögreglan hafði snemma nokkuð skýra sýn af atburðarásinni á vettvangi og fljótlega var sextán ára piltur handtekinn í tengslum við málið. Sá var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald eins og fram hefur komið, en pilturinn er grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi. Hin slösuðu, tvær stúlkur og einn piltur, eru öll á svipuðu reki og árásarmaðurinn. Hann er íslenskur og báðar stúlkurnar sömuleiðis, en pilturinn sem varð fyrir árásinni er af erlendu bergi brotinn. Önnur stúlknanna slasaðist mjög alvarlega og er enn í lífshættu.

Sjá einnig: Sonurinn á batavegi eftir stunguárás á Menningarnótt – „Eftir árásina finnst mér við ekki lengur örugg“

Fjölmenni var í miðborginni þegar árásin átti sér stað enda flugeldasýningu Menningarnætur nýlokið. Margir voru því í nálægð við vettvanginn þegar lögreglu og sjúkralið bar að og ber fjöldi þeirra sem hafa verið kallaðir til skýrslutöku vitni um það. Í rannsóknum lögreglu er reynt að varpa ljósi á alla þætti máls, m.a. um frekari aðdraganda atvika og hugsanleg tengsl málsaðila. Segir í tilkynningunni að um sé að ræða hefðbundið verklag og á við um þetta mál sem önnur, en ekki er tímabært að upplýsa nánar um málsatvik.

Ekki er hægt að greina frekar frá einstökum þáttum rannsóknarinnar umfram það sem hér hefur verið nefnt.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sakar Jón Steinar um að dreifa slúðri um Flokk fólksins – „Hefur þú enga sómatilfinningu herra dómari?“

Sakar Jón Steinar um að dreifa slúðri um Flokk fólksins – „Hefur þú enga sómatilfinningu herra dómari?“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Fjörugar athugasemdir eftir kvörtun miðborgarbúa vegna hávaða, hrópa og úrgangslosunar – „Costco er bæði með partýbleyjur og poka“

Fjörugar athugasemdir eftir kvörtun miðborgarbúa vegna hávaða, hrópa og úrgangslosunar – „Costco er bæði með partýbleyjur og poka“
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur: „Af hverju taka stjórnvöld ekki á þessari græðgi bankanna?“

Vilhjálmur: „Af hverju taka stjórnvöld ekki á þessari græðgi bankanna?“
Fréttir
Í gær

Gagnrýnir „dapurleg“ ummæli Jóns Péturs: Sagðist ætla að setja húsið á sölu ef Heiða Björg yrði borgarstjóri

Gagnrýnir „dapurleg“ ummæli Jóns Péturs: Sagðist ætla að setja húsið á sölu ef Heiða Björg yrði borgarstjóri