fbpx
Mánudagur 26.ágúst 2024
Fréttir

Ævar Þór þungt hugsi: „Ég er ekki viss um að nokkur skilji“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 26. ágúst 2024 09:52

Ævar Þór Benediktsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég skil ekki,“ segir Ævar Þór Benediktsson, leikari, rithöfundur, faðir og sendiherra UNICEF á Íslandi í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.

Þar gerir hann mál hins ellefu ára gamla Yazans Tamimi að umtalsefni en Tamimi er frá Palestínu og glímir við vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne. Til stendur að vísa Yazan og fjölskyldu hans úr landi og til Spánar en gerist það er hætt við að rof komi á þjónustu hans sem gæti orðið lífshættulegt.

Ævar Þór er augljóslega þungt hugsi vegna málsins.

„Ég skil ekki hvernig hægt er að senda fatlað, fárveikt barn á flótta af landi brott. Ég bara skil það ekki,“ segir Ævar Þór sem segist hafa reynt að sjá allar hliðar málsins og setja sig í spor þeirra sem ráða.

„Því ég stoppa alltaf á sömu staðreyndinni: Við erum að fara að senda fatlað barn á flótta, með lífshættulegan hrörnunarsjúkdóm, af landi brott. Og ég skil það ekki,“ segir Ævar Þór í greininni.

Barnasáttmálinn hafður að engu

Ævar segir að hann skilji ekki hvernig Ísland getur þanið út kassann á alþjóðavettvangi og sagst fara eftir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

„Því við gerum það augljóslega ekki. Sáttmálinn var lögfestur hér á landi árið 2013. Við kennum hann í skólum og förum yfir mikilvægi greinanna sem mynda sáttmálann. Ég hef sjálfur tekið þátt í gerð ótalmargra myndbanda á vegum UNICEF þar sem farið er ofan í saumana á þessum greinum. En þegar á reynir þá förum við ekki eftir sáttmálanum. Þessum sem var festur í lög, muniði? Ég skil ekki.“

Skora á öll starfandi flugfélög að neita að flytja Yazan úr landi

Ævar segir að sáttmálinn innihaldi 54 greinar og fjölmargar eigi við í tilfelli Yazans, en kannski sérstaklega þriðja greinin.

„Það sem barninu er fyrir bestu.“ Þar segir: „Þegar fullorðnir taka ákvarðanir eiga þeir að hugsa um hvaða áhrif þær hafa á börn og eiga að gera það sem er best fyrir þau. Stjórnvöld eiga að tryggja að foreldrar verndi börn sín og gæti þeirra eða aðrir í þeirra stað þegar þörf er á. Stjórnvöld eiga að sjá til þess að fólk sem ábyrgt er fyrir börnum hafi hagsmuni þeirra alltaf að leiðarljósi og staðir sem ætlaðir eru börnum uppfylli einnig þær skyldur.“

Netið mun ekki halda

Ævar Þór segir að þetta skilji hann og þetta sé ekki flókið. En það sé augljóst að þau sem ráða skilja þetta ekki.

„Það er vitað að netið sem á að grípa Yazan á Spáni mun ekki halda. Þótt læknisaðstoð standi tæknilega séð til boða á Spáni er sú þjónusta einungis í boði fyrir útvalda á einkareknum sjúkrahúsum, sem foreldrar Yazans hafa ekki efni á. Sérfræðingar og læknar hafa bent á það, trekk í trekk, að það geti verið lífshættulegt fyrir hann að fara héðan. Að það sé barninu fyrir bestu að vera áfram hér. Samt á að flytja Yazan og fjölskyldu hans úr landi.“

Ævar segist ekki heldur skilja frasann um „einstök mál“ – þessi sem ekki má tjá sig um.

„Frasann sem er notaður eins og tromp þegar fer að glitta í manneskjuna á bak við nafnið í Excel-skjalinu. Frasann sem er notaður til að skamma fólk þegar við vogum okkur að spyrja út í martröðina sem Yazan og fjölskylda hans eru að ganga í gegnum.“

Greinina endar Ævar Þór á þessum orðum:

„Ég skil ekki hvernig við sem þjóð (og já, ég skrifa „við“ og finnst það ógeðslegt, en þetta er samt sem áður í okkar nafni), við sem manneskjur, getum horfst í augu hvort við annað ef við ætlum að senda fatlað, veikt barn á flótta úr landi út í aðstæður sem munu að öllum líkindum rústa lífi þess. Ég skil ekki. Ég er ekki viss um að nokkur skilji. Yazan á heima hér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Aukin eftirspurn eftir svuntuaðgerðum en Sjúkratryggingar borga næstum aldrei – Kostnaður getur hlaupið á milljónum króna

Aukin eftirspurn eftir svuntuaðgerðum en Sjúkratryggingar borga næstum aldrei – Kostnaður getur hlaupið á milljónum króna
Fréttir
Í gær

Steingrímur var við störf á götulokunarstöð vegna Reykjavíkurmaraþonsins og segir Svein hafa keyrt á sig – Sveinn neitar því alfarið og segir Steingrím hafa valdið skemmdum á bíl hans

Steingrímur var við störf á götulokunarstöð vegna Reykjavíkurmaraþonsins og segir Svein hafa keyrt á sig – Sveinn neitar því alfarið og segir Steingrím hafa valdið skemmdum á bíl hans