Samkvæmt tilkynningu á ættfræðivefnum islendingabok.is verður ekki hægt að nota rafræn skilríki frá og með 1. september næstkomandi. Uppgefin ástæða er kostnaður við innleiðingu á nýrri auðkenningaþjónustu.
„Innskráningarþjónustu island.is verður lokað þann 1. september 2024. Vegna kostnaðar við aðrar auðkenningarþjónustu verður að óbreyttu ekki boðið upp á innskráningu með rafrænum skilríkjum á Íslendingabók eftir þann tíma,“ segir í tilkynningunni. „Eftir sem áður verður hægt að skrá sig inn á Íslendingabók með notandanafni og lykilorði. Athugið þó að netfang ykkar sé rétt skráð til að tryggja endurheimt lykilorðs.“
Tómas Ingi Olrich, þáverandi menntamálaráðherra, opnaði formlega Íslendingabók árið 2003. En vefurinn er rekinn af Íslenskri erfðagreiningu og Friðriki Skúlasyni ehf. Þjónustan er ókeypis fyrir notendur og ekki eru neinar auglýsingar á síðunni þannig að tekjur af henni eru engar.
Á síðasta ári var tilkynnt að eldri innskráningarþjónusta island.is myndi loka þann 1. september og verður island.is því einungis fyrir stofnanir hins opinbera. Var einkaaðilum bent á að leita til auðkenningarfyrirtækja eins og Auðkenni, Dokobit, Kenni, Origo, Signet, Taktikal og Vettvangs vilji þeir halda áfram að nota rafræn skilríki.