Bild segir að áhafnarmeðlimirnir fjórir hafi stokkið út í fallhlífum en einn þeirra hafi látist. Hinir þrír liggja á sjúkrahúsi. Áverkar þeirra eru mismiklir.
Talið er að tæknilegt vandamál hafi valdið því að flugvélin hrapaði. Flugið er sagt hafa verið hluti af ósköp venjulegri rútínu rússneska flughersins og að hrapið hafi ekki nein bein tengsl við stríðið í Úkraínu.
Það er auðvitað mikið áfall fyrir Vladímír Pútín, forseta, að missa flugvél af þessari tegund. Í apríl hrapaði önnur slík til jarðar í Stavropol en það voru Úkraínumenn sem skutu hana niður.