BBC skýrir frá þessu og segir að þetta geti gert Rússum erfitt fyrir við stríðsreksturinn.
Rússneskir embættismenn segja að Úkraínumenn hafi einnig einangrað nokkur svæði í héraðinu frá restinni af því, sérstaklega nærri bænum Glushkova.
Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, sagði um helgina að úkraínski herinn sé að styrkja stöðu sína í Kúrsk og að þau svæði sem nú séu á valdi Úkraínumanna geti orðið „skiptimynt“. Þarna á hann líklega við að Úkraínumenn hyggist nota þau til að semja við Rússa um að fá aftur úkraínsk landsvæði sem eru nú á valdi Rússa.