Í skýrslunni segir að þessi mikli fjöldi fallinna og særðra almennra borgara sé í takt við aukið mannfall meðal þeirra síðustu mánuði en frá því í mars á þessu ári hefur fjöldinn aukist með hverjum mánuðinum.
Í skýrslunni er meðal annars fjallað um svívirðilega árás Rússa á marga úkraínska bæi og borgir þann 8. júlí síðastliðinn. Þá réðust þeir meðal annars á barnaspítala í Kiyv, annan spítala og margar spennistöðvar. 43 almennir borgarar, hið minnsta, létust í þessum árásum.
Í skýrslunni kemur fram að frá því að innrásin hófst í lok febrúar 2022 hafi 11.520 almennir úkraínskir borgarar fallið og 23.640 hafi særst.
Skýrsluhöfundar telja ekki útilokað að fjöldi fallinna í júlí sé meiri en fram kemur í skýrslunni.