En það voru ekki bara skipin, sem tóku þátt í deginum, sem vöktu athygli. Það gerðu einnig skipin sem ekki tóku þátt í honum. BBC segir að engin af þeim skipum, sem Úkraínumenn segjast hafa eyðilagt eða skemmt, hafi tekið þátt í hátíðarhöldunum.
Hinn óháði rússneski miðill Novaja Gazeta, sem starfar utan Rússlands, sagði þetta „vera það sem kemst næst því að vera staðfesting á að herskipin séu ekki starfhæf“.
Breska varnarmálaráðuneytið sagði á sunnudaginn, í daglegri umfjöllun sinni um gang stríðsins í Úkraínu, að frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu hafi Úkraínumenn eyðilagt eða skemmt 26 rússnesk herskip.
Úkraínumenn segjast hafa eyðilagt þriðjung Svartahafsflota Rússa en hann taldi 80 skip áður en stríðið hófst.
Árásir Úkraínumanna á Svartahafsflotann hafa verið vandræðalegar í meira lagi fyrir Rússa, ekki síst í ljósi þess að Úkraínumenn ráða ekki yfir neinum stórum herskipum.
Þeir hafa ráðist á rússnesku herskipin með langdrægum flugskeytum, sjávardrónum og siglandi sprengjum.
Tony Radakin, yfirmaður breska heraflans, sagði snemma í júlí að á síðasta ári hafi Úkraínumenn, sem ráða eiginlega ekki yfir neinum flota, haft í fullu tré við rússneska Svartahafsflotann og gott betur en það.