Íslensk kona greinir frá því á samfélagsmiðlum að kærasti hennar hafi fengið háa kröfu í heimabankann eftir að hafa skoðað Kirkjufellsfoss á Snæfellsnesi. Hún hafi oft komið þangað og ekki vitað að byrjað væri að rukka inn.
„Ég og kærasti minn fórum á Kirkjufellsfoss um helgina, ég hef oft komið þangað síðan ég var lítil og alltaf hefur þetta bara verið frítt,“ segir konan á samfélagsmiðlinum Reddit.
Segir hún að hún og kærasti hennar hafi ekki borgað inn, enda hafi þau ekki vitað að það kostaði. Eftir þetta hafi kærasti hennar hins vegar fengið rukkun upp á 6 þúsund krónur í heimabankann. Reiknar hún með því að myndavélar hafi náð bílnúmerinu hans.
„Í hvaða heimi er þetta í lagi. Bara því „túristar vita ekki betur“ og bara því þau geta gert þetta svona dýrt,“ segir konan og að hún sé pirruð á svona græðgi.
Kirkjufellsfoss, við Kirkjufell við Grundarfjörð, er einn af vinsælustu viðkomustöðum ferðamanna á Snæfellsnesi sem og Kirkjufellið sjálft vitaskuld. Hafa vinsældirnar verið slíkar að Grundfirðingar sjálfir hafa kvartað undan ágangi ferðamanna.
Heilmiklar umræður hafa skapast á þræðinum sem konan stofnaði. Taka flestir undir að þetta sé mjög dýrt og að þessi kostnaður ætti ekki að lenda á Íslendingum.
„Finnst lágmark að við Íslendingar myndum fá okkar eigin „náttúrupassa“ og sleppa þannig við allan þennan rugl kostnað. Þetta er orðið svo ruglað þegar normið er 2 milljónir ferðamenn per ár, eða ca 4-5 túristar á hvern Íslending. Þá er eins og að við séum að heimsækja túristana á Íslandi frekar en öfugt,“ segir einn netverjinn.
Heimamaður frá Grundarfirði segir að fjöldi ferðamanna á þessum stað sé gríðarlegur.
„Ég er frá Grundarfirði og ólst upp við að hjóla að Kirkjufellsfoss í til að synda þarna um. Þetta er búið að pirra okkur Grundfirðinga ótrúlega mikið, enginn friður þarna, allt fullt af túristum á veginum, getum ekki lengur farið þarna og farið á ströndina upp við Kirkjufellið. Þoooooli þetta ekki,“ segir Grundfirðingurinn en tekur undir að þetta sé mikið okur en bendir á að búið sé að útbúa bílastæði þarna og svo þurfi að viðhalda veginum.
Annar bendir á að það sé töluvert ódýrara að borga á staðnum og að verðið sé vel merkt. Það kosti 1000 krónur að leggja þarna. Þó sé engin auka þjónusta. „Þetta er brjáluð græðgi,“ segir hann.