Í tilkynningu frá ASÍ kemur fram að hækkanirnar séu mestar í verslunum Samkaupa; Kjörbúðinni, Nettó og Krambúðinni. Verðlag lækkar í Heimkaupum, einni verslana. Aðrar verslanir eru á svipuðu róli og í fyrri mánuðum.
Verðlagseftirlit ASÍ segir að hækkanir mánaðarins nái yfir marga vöruflokka. Í fyrri mánuðum hefur verið á súkkulaði til dæmis hækkað sérlega mikið, en nú er hækkunin komin í ferskvöru, niðursoðið grænmeti og þvíumlíkt. Nefnd eru dæmi um hækkanir:
MS Nýmjólk hækkar um 1% í Kjörbúðinni og Nettó en stendur í stað í Heimkaupum, Hagkaup, Bónus og Krónunni.
Bent er á það að vörur frá Freyju hafi einnig hækkað á milli mánaða og fylgja þar með í spor annarra súkkulaðiframleiðenda. Greindi verðlagseftirlitið frá því í lok mars að Nói Síríus og Góa-Linda hefðu hækkað verð sín en Freyja ekki. Nú hafi vörur Freyju hækkað líka, til dæmis hækkar verð súkkulaðiplötu með Djúpum um 16% í Nettó, 14% í Krónunni og 11% í Hagkaup. Stór Freyju Rís hækkar um 22% í Bónus, 21% í Krónunni, 20% í Nettó og 11% í Hagkaup.
Í tilkynningu sem ASÍ sendi frá sér vegna könnunarinnar kemur fram að verðlag í matvöruverslunum hafi hækkað um 1,45% frá undirritun kjarasamninga, sem jafngildir 4,0% á ársgrundvelli.
„Um helmingur hækkunarinnar hefur orðið á undanförnum vikum og skorðast kippurinn að miklu leyti við verslanir Samkaupa. Þegar stærstu fjórar verslanir landsins eru skoðaðar sést að hækkunartaktur verðlags í Bónus, Krónunni og Hagkaup hefur verið á bilinu 0-0,6% á mánuði, og sama gilti um Nettó þar til nú.
Þegar fleiri verslanir eru skoðaðar má sjá eftirfarandi mynstur; verðlag í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni hefur hækkað hraðast undanfarnar vikur, en það hefur lækkað í Heimkaupum. Aðrar búðir eru á svipuðu róli og undanfarna mánuði.
Á grafinu eru verslanir Samkaupa merktar með bláu, Heimkaup með rauðu og aðrar með svörtu.
Í frétt ASÍ er tekið fram að verðlagsbreytingar séu reiknaðar með vigtun vöruflokka og verslana. „Þegar talað er um breytingu á verðlagi er um að ræða veginn útreikning, en breyting á verði merkir stakan samanburð eða óvegið meðaltal. Við verðsamanburð eru skoðuð meðalverð sérhverrar vöru yfir mánuðinn (eða 6-13. mars þegar borið er saman við undirritun kjarasamninga) og borin saman við meðalverð mánuðarins á undan. Breytingar eru svo vegnar útfrá mikilvægi vöruflokka. Fjöldi samanburða í hverjum mánuði er um eða yfir 20.000.“