Sigurður Þ. Ragnarsson eða Siggi stormur eins og við þekkjum hans best segir atvik sem hann varð vitni að í gær sýna að Íslendingar séu komnir yfir alla skynsemi í verðlagningu í ferðaþjónustu.
„Nú er ég hvumsa af þróun ferðaþjónustunnar,“ segir Siggi í færslu á Facebook. Þar segist hann hafa farið í veitingasjoppu í Borgarnesi og fengið sér skyr frá Ísey.
„Rétt á eftir setjast fjórir erlendir ferðamenn (ekki viss hverrar þjóðar) á næsta borð enda svangir. Svo var maturinn þeirra kallaður upp. Og hvað haldið þið: Ferðamennirnir keyptu sér einn súpudisk og einn disk með fiski að mér sýndist. Síðan skiptu þeir þessari „einu máltíð“ í fjóra parta. Ég hugsaði: „Hvað er í gangi?“
Siggi segist hafa spurt ferðamennina hvort þeir kynnu ekki að meta íslenskan mat.
„Money money money,“ var svarið sem hann fékk.
„Við erum komin út yfir alla skynsemi í verðlagningu – ferðamenn láta ekki bjóða sér lengur hvað sem er. Eða það sýndi dæmið!!!“