Nokkuð var um aðstoðarbeiðnir vegna fólks í annarlegu ástandi og veikinda og þá bárust einnig beiðnir um aðstoð við opinbera aðila sem lögregla sinnti. Rétt fyrir klukkan fimm í morgun gisti einn í fangaklefa.
Óskað var eftir lögreglu vegna einstaklings í annarlegu ástandi í Vesturbænum sem var að ógna og hóta börnum. Málið er í rannsókn en frekari upplýsingar koma ekki fram í skeyti lögreglu.
Lögreglu var svo tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi í miðborginni sem var að brjóta rúður í fjölbýli og reyna að komast þar inn. Maðurinn var handtekinn og er málið í rannsókn. Þá var tilkynnt um nokkra einstaklinga sem voru að reyna að opna mannlausar bifreiðar í miðborginni. Lögregla hafði upp á hinum grunuðu og var málið afgreitt á vettvangi. Þá var lögreglu tilkynnt um hóp ungmenna inni í menntastofnum í leyfisleysi í hverfi 108 og er grunur um húsbrot. Málið er í rannsókn.
Loks óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð vegna líkamsárásar í hverfi 108. Málið er sömuleiðis í rannsókn.
Lögregla handtók svo ökumann í Kópavogi eftir að hann reyndi að stinga lögreglu af. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja, að aka ítrekað án þess að hafa öðlast ökuréttindi, óheimila notkun nagladekkja og að aka bifreið þar sem ástand hennar var með þeim hætti að það olli hættu fyrir aðra. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð í hefðbundið ferli.