Sprengjusveit ríkislögreglustjóra er að störfum á Keflavíkurflugvelli eftir að sprengja sprakk á salerni í brottfarasal. Einn er lítillega slasaður en viðbúnaður er töluverður. Mbl.is greinir frá.
Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir að hlutur hafi sprungið í höndunum á starfsmanni sem var þar að störfum. Um verktaka er að ræða. Hugsanlega sé um heimagerða sprengju, svokallað víti að ræða.
RÚV greinir frá að ekki sé talið að atvikið muni hafa áhrif á flugáætlun að svö stöddu.