fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Fréttir

Fáni Palestínu hengdur út um turnglugga Hallgrímskirkju

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 17. júlí 2024 17:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtökin No Borders Iceland hengdu rétt í þessu fána Palestínu út um turnglugga Hallgrímskirkju. 

Starfsmaður Hall­gríms­kirkju segir í samtalið við Mbl að fánarnir hafi ekki verið hengdir upp í sam­ráði við kirkj­una. Hann seg­ist hafa farið upp í kirkjut­urn en þá hafi hann verið tóm­ur og fán­arn­ir í kjöl­farið verið tekn­ir niður. Þeir hafi lík­lega aðeins verið sýni­leg­ir í um fimm mín­út­ur.

Í yfirlýsingu sem samtökin sendu á fjölmiðla og birtu á Facebook-síðu sinni krefjast þau aðgerða af hálfu stjórnvalda:

„No Borders stendur fyrir samfélag án landamæra og þjóðríkja, þar sem mannréttindi og ferðafrelsi eru tryggð fyrir öll. Barátta okkar verður ekki unnin fyrr en að hernámi og aðskilnaðar- og nýlendustefnu um allan heim verður útrýmt. Skref í áttina að því er að hernám Ísraels verði lagt niður og palestínskt fólk á flótta geti snúið aftur

Nú hefur Ísraelsher framið linnulausar og grimmilegar árásir á Gasasvæðið í meira en 9 mánuði. Samkvæmt fræðigrein úr Lancet, elsta og virtasta læknatímariti heims, hafa í kringum 186.000 manns á Gasasvæðinu hafa verið myrt, grafist undir rústum eða soltið í hel, þar af aðallega konur og börn. Mannréttinasamtökin, Euro-Med Human Rights Monitor og Amnesty International telja einnig tölfræði heilbrigðisyfirvalda Gasasvæðisins ekki ná yfir þann fjölda sem hefur verið myrtur af Ísraelsher.

Framferði íslenskra stjórnvalda hefur verið með öllu skammarlegt og ógeðfellt, þar má nefna frystingu framlaga til palestínsku flóttamannaaðstoðarinnar sem er þessa stundina eina lífæð palestínska barna en sú ákvörðun var einungis tekin vegna nú afsannaðra lyga ísraelsku ógnarstjórnarinnar sem hafði engar handbærar sannanir fyrir staðhæfingum sínum. Einnig hefur ríkisstjórnin einsett sér það markmið að grafa enn frekar undan stöðu palestínsks fólks á flótta sem búsett eru á Íslandi, sem og allra flóttamanna. Þá áformar ríkisstjórnin einnig að brottvísa 11 dreng með Duchenne heilkenni úr landi en læknisvottorð hafa sýnt fram á að brottvísun komi til með að stytta ævi hans gríðarlega, auk þess sem flugið sjálft gæti orðið honum að bana

Í stuttu máli eru kröfur okkar:

  1. Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael og að viðskiptabann verði sett á landið.
  2. Ísland styðji málsókn Suður-Afríku fyrir Alþjóðadómstólnum.
  3. Ekki fleiri brottvísanir, byrja á að stöðva brottvísanir til Grikklands og beitingu Dyflinnarreglugerðarinnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir bikblæðingar ekki réttlætanlegar og Vegagerðina ábyrga – Ákveðnir vegir hreinlega hættulegir

Segir bikblæðingar ekki réttlætanlegar og Vegagerðina ábyrga – Ákveðnir vegir hreinlega hættulegir
Fréttir
Í gær

Lögregla lokaði Hafnargötunni í hálftíma vegna alvarlegs atviks við Bónus

Lögregla lokaði Hafnargötunni í hálftíma vegna alvarlegs atviks við Bónus
Fréttir
Í gær

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pétur Jökull verður dreginn fyrir dóm í ágústmánuði

Pétur Jökull verður dreginn fyrir dóm í ágústmánuði