fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Fréttir

Róbert Guðfinnsson hjálpaði Veraldarvinum að eignast Hrafn Jökulsson

Ritstjórn DV
Laugardaginn 13. júlí 2024 08:57

Strandhreinsibáturinn Hrafn Jökulsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veraldarvinir slá upp veglegri hátíð á Siglufirði í dag, laugardaginn 13. júlí. Við það tilefni verður nýr strandhreinsibátur Veraldarvina vígður við hátíðlega athöfn. Báturinn hefur verið skírður í höfuðið á rithöfundinum og baráttumanninum Hrafni Jökulssyni sem lést í september árið 2022. Báturinn gegndi áður hlutverki dráttarbáts en athafnarmaðurinn Róbert Guðfinnsson gerði Veraldarvinum kleyft að eignast hið glæsilega fley. Elísabet Jökulsdóttir, systir Hrafns vígir bátinn.

Búist er við fjölda gesta og sjálfboðaliða frá fjórtán þjóðlöndum sem lagt hafa Veraldarvinum lið við Strandhreinsun. Einnig verða veitingar í boði og yngstu gestum hátíðarinnar stendur til boða að föndra og mála báta og nýta m.a. ýmislegt sem rekið hefur á fjörur landsins í listaverk sín.

Elísabet mun við víxluna frumflytja ljóð eftir Bubba Morthens en ljóðið samdi Bubbi sérstaklega í tilefni hátíðarinnar.

Þá verður einnig frumflutt sjóferðabæn eftir listamanninn Snorra Ásmundsson. Snorri segir í bæninni: „Megi Póseidon, Hilarion, Njörður og landvættir Íslands fylgja Hrafni Jökullssyni í sjóferðum sínum […] megi fylgja honum gæfa og guðslukka, mikið starf í þágu strandhreinsun og megi hann vera farsæll og alltaf koma heill í höfn.“

Hrafn var hamhleypa til verka

Elísabet segir í ræðu sinni sem flutt verður á eftir að Hrafn hafi verið hamhleypa til verka og fengist við ótal margt áður en hann tók að sér að hreinsa fjörur.

„Við lok ævi sinnar gekk hann ötullega fram í strandhreinsun […] Þótt hann væri aðframkominn síðustu ár sín brann eldur úr augum hans.“

Það var vorið 2020 sem Hrafn ákvað að venda sínu kvæði í kross eftir áralanga þjónustu við skákgyðjuna og ganga til liðs við Verldarvini. Veraldarvinir eru sjálfboðasamtök sem setja umhverfismál í öndvegi. Hrafn sagði í viðtali um þennan viðsnúning í lífi sínu:

Hrafn að störfum ásamt Veraldarvinum

„13. maí settist ég niður á gamlan drumb í fjörukambinum, leit yfir víkina og sagði: Kolgrafarvík mín. Næstu fjögur ár skal ég nota til þess að endurheimta minn ævintýraheim, hreinsa þína strönd og grund, og allar aðrar fjörur meðan mér endist þróttur. […] Þegar ég fæ ungt fólk úr öllum heimshlutum sem kemur hingað að vinna í sjálfboðavinnu að hreinsa strandlengjuna okkar og náttúruna þá fyllist ég bjartsýni. Að vera úti í náttúrunni daginn út og inn, klukkustundum saman og hlusta á sjóinn og fuglana og þögnina, það er held ég á við alla heimsins jógatíma og núvitundarnámskeið sem til eru.“

Það var þá sem Hrafn kynntist Þórarni Ívarssyni stofnanda Veraldarvina. Þórarinn hefur á rúmum tuttugu árum fengið til landsins allt að tvöþúsund vaska sjálfboðaliða á ári hverju eða 22 þúsund í heildina og einbeita þeir sér að náttúruvernd. Gríðarlegt magn plasts og úrgangs af ýmsum toga var fjarlægt fyrir tilstilli Hrafns og Veraldarvina.

Þakklát Róberti fyrir höfðinglegt framlag

Sterkir bakhjarlar með hjartað á réttum stað skipta samtök eins og Veraldarvini öllu máli og einn af liðsmönnum Veraldarvina er athafnarmaðurinn Róbert Guðfinnsson. Róbert er frá Siglufirði og hefur fjárfest ríkulega í sínum gamla heimabæ og hjálpað til við að byggja þar upp blómlega starfsemi. Draumur veraldarvina um að eignast strandhreinsibát varð að veruleika fyrir tilstilli Róberts og ákvað Þórarinn að nefna bátinn í höfuðið á Hrafni. Það má því segja að Hafn Jökulsson sé hvergi nærri hættur að láta til sín taka við að hreinsa fjörur landsins þó hann sé allur.

Þórarinn Ívarsson segir um bátinn og nafngiftina:

„Þetta fallega fley mun gagnast okkur vel við hreinsun strandlengjunnar. Við höfum saknað vinar okkar Hrafns frá því að hann féll frá og ég er viss um að andi hans mun fylgja bátnum hvert sem hann fer. „Róbert Guðfinnsson fær sérstakar þakkir fyrir hans framlag til þessa verkefnis.

Laugardaginn 13 júlí kl. 14.00 verður veraldarvinadagur og hátíð á Siglufirði. Ég hvet ykkur til þess að mæta ef þið hafið tök á“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Líkamsleifar tveggja manna í ferðatöskum vekja óhug í Bretlandi – Scotland Yard stýrir leit að hinum grunuðu

Líkamsleifar tveggja manna í ferðatöskum vekja óhug í Bretlandi – Scotland Yard stýrir leit að hinum grunuðu