fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Fréttir

Kraftaverkabarn fannst í vegkanti eftir tvo daga – Eldri bróðirinn dáinn og móðirin í haldi

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 13. júlí 2024 19:00

Móðirin Aaliyah Jack og vegkanturinn þar sem yngri sonur hennar fannst.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vörubílstjóri fann eins árs gamlan dreng, „kraftaverkabarn“, við vegkant í Louisiana fylki á þriðjudag. Fjögurra ára bróðir hans fannst látinn og móðir drengjanna hefur verið handtekin.

Vörubílstjórinn gerði lögreglunni í Calcasieu Parish viðvart eftir að hann sá smábarn í skurði við vegkant nærri bænum Vinton í Louisiana klukkan 9:00 um morguninn á þriðjudag, 9. júlí. Lögreglan vissi af týnda drengnum og hafði verið að leita að honum frá því á mánudag. En þá fannst fjögurra ára bróðir hans látinn í tjörn nærri Vinton.

Síðast var vitað af börnunum með móður sinni, Aaliyah N. Jack á laugardag, 6. júlí. Jack fannst seinna í Mississippi fylki án sona sinna og var handtekin. Hún hefur þegar verið ákærð fyrir að tilkynna ekki um týnt barn.

„Við lítum á þennan eins árs gamla dreng sem kraftaverkabarnið okkar af því að hann var enn þá á lífi…. ótrúlegt,“ sagði Gary Guillory, lögreglustjóri í Calcasieu Parish á blaðamannafundi á þriðjudag. „Þessi drengur var í tvo sólarhringa úti í veðrinu við vegkantinn. Við þökkum guði fyrir að þessi vörubílstjóri hafi séð hann.“

Frekari ákærur hugsanlegar

Drengurinn var í merkilega góðu ásigkomulagi. Hann hafði þó verið nokkuð bitinn af skordýrum eins og fréttastofan AP greinir frá. Var hann færður á sjúkrahús til aðhlynningar.

„Fulltrúar okkar eru nú að rannsaka þetta sorglega atvik,“ sagði Guillory. „Sem betur fer höfum við fundið eins árs gamla barnið og farið með það á spítala í nágrenninu til aðhlynningar. Hann er núna í öruggum höndum yfirvalda. Við höfum skilning á að almenningur hafi áhyggjur af málinu og erum staðráðin í að tryggja að börnin fái réttlæti.“

Rannsókn á andláti hins fjögurra ára gamla drengs er í gangi. Guillory hét því að málið yrði rannsakað til hlítar. „Hjörtu okkar eru hjá fjölskyldu þessarra tveggja barna,“ sagði hann. „Fulltrúar okkar eru að stöfum og frekari ákærur eru hugsanlegar. Réttarmeinafræðingur mun skera úr um dánarorsökina.“

Tók drengina af ömmunni

Móðuramma drengjanna, Conswella Jack, steig fram í gær, miðvikudag, og greindi frá því að hún hafi verið að gæta þeirra þegar móðir þeirra tók þá burt.

Móðirin Aaliyah, sem er 25 ára gömul, hefur ekki enn þá verið ákærð fyrir manndráp á fjögurra ára syni sínum og dánarorsök hans liggur ekki enn þá fyrir. Hún var með forræði yfir börnum sínum en þau bjuggu samt hjá Conswellu þar sem Aaliyah gat ekki framfleitt þeim.

Aaliyah lét móður sína ekki vita af því að hún hefði farið með drengina. Þegar Conswella reyndi að hafa samband við dóttur sína svaraði hún aðeins með því að senda henni mynd.

„Hún sendi mér mynd af bíl inn í runna sem leit út fyrir að vera klessukeyrður,“ sagði Conswella við blaðið Acadiana Advocate. „Ég skildi ekkert í þessu þannig að ég hringdi og hringdi og hringdi.“

Conswella sagðist vera buguð af sorg að missa eldri drenginn en himinlifandi að sá yngri hafi lifað af.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt