fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Fréttir

Tilkynna aðgerðir í mávastríðinu í Garðabæ til MAST – „Mávadeildin Terminators“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 10. júlí 2024 21:00

Mávastríðið hefur staðið yfir í mörg ár.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ýmislegt hefur gengið á í baráttu Garðbæinga við máva. Mávarnir hafa verpt á húsþök í Sjálandshverfi og víðar á undanförnum árum við litla hrifningu íbúa. Sumir íbúar hafa brugðið á það ráð að fjarlægja egg og hreiður en aðrir hafa hins vegar sent til tilkynningar til Matvælastofnunar (MAST) um ungadráp.

Í hverfisgrúbbunni greinir einn íbúi frá því að flestir séu sammála um að aðgerðirnar í sumar hafi gengið vel. Segir hann að einhverjir íbúar séu hins vegar ósáttir við aðgerðirnar og hafi tilkynnt til MAST. Tekur hann fram að engir ungar hafi verið drepnir. Aðeins egg og hreiður hafi verið fjarlægð af húsþökum eins og heimilt er.

„Þess vegna er ekki ásættanlegt að einhver tilkynni íbúa sem fara upp á þökin til MAST um að þar séu ungadráparar að störfum,“ segir hann.

Vel sóttur íbúafundur

Mávarnir hafa plagað íbúana um nokkurra ára skeið og reglulega birst fréttir í fjölmiðlum um þessa baráttu þeirra. Húsin í hverfinu eru mörg hver með flöt þök og jafn vel steina ofan á sem henta einkar vel sem varpstaðir fyrir máva, sem skíta út um allt og verja varpstaðinn með kjafti og klóm.

Í apríl á síðasta ári var haldinn vel sóttur íbúafundur í Sjálandsskóla til að ræða leiðir til að takast á við mávana. En hraunið sem byggðin stendur við er friðlýst og baráttan því takmörkum háð. Á fundinum voru meðal annars bæjarstjóri, meindýraeyðir og dýravistfræðingur.

Hvetur bærinn íbúa til að fylgjast með þökum sínum og öðrum stöðum sem mávar geta nýtt sem varpstaði eða set staði. Leiðir til að hrekja þá burtu eru meðal annars að trufla þá, eyða eggjum og hreiðrum og skilja ekki eftir rusl og matvæli á opnum svæðum. Ekki má þó eyða eggjum í friðlandinu sjálfu.

Mávadeildin: Terminators

Varptímabilið hefst í maí og stendur fram í júlí. Enn þá eru íbúar að finna egg og hreiður á þökum sínum.

Hópur sem gengur undir merkinu Mávadeildin: Terminators fer um og eyðir hreiðrunum. Einn greinir frá því á íbúasíðunni að hafa fjarlægt tvö egg í einu hreiðri í gær.

Sjá einnig:

Náttúrufræðistofnun á móti því að Garðbæingar stingi á egg máva – Sýna þurfi lífsbaráttu villtra dýra skilning

„En mávurinn gaf þau ekki eftir mótstöðulaust, náði að skíta einni hressilegri bunu yfir okkur! Hlýtur að þýða að varptíminn sé að klárast,“ segir hann.

Eins og áður segir er ekki full samstaða um aðgerðirnar. Ein kona nefnir í umræðunum á síðunni að þetta merki, Mávadeildin: Terminators, sé mjög ósmekklegt og sorgleg nálgun.

„Eins og þetta sé einhver tölvuleikur. Hvað með ágang mannskepnunnar? Blessuð dýrin og náttúran þurfa stöðugt að víkja fyrir manninum,“ segir hún.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dópaði og drukkni skipstjórinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm

Dópaði og drukkni skipstjórinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm