Það er University of Maryland sem gerði kortið og geta allir notað það. Hér er hægt að skoða það.
Maður slær einfaldlega inn nafn borgarinnar eða bæjarins og upp kemur spá um hvernig loftslagið getur orðið og er þá miðað við áhrif loftslagsbreytinganna. Þetta framtíðarloftslag er síðan borið saman við borgir og bæi sem búa við svipað loftslag núna.
Ef framtíðarloftslag Reykjavíkur er skoðað sést að meðalhitinn að sumri til verði 3,5 stigum hærri en nú er og að úrkoman verði 4,1% meiri. Meðalhitinn að vetri til verður 3,8 stigum hærri en nú er og úrkoman 6,8% minni. Mun þetta framtíðarloftslag minna á það sem er nú í Kippen í Skotlandi.
Ef framtíðarloftslagið á Akureyri er skoðað kemur í ljós að meðalhitinn á sumrin verður 3,1 stigum hærri en nú er og úrkoman verður 26,1% meiri. Á veturna verður meðalhitinn 3,9 stigum hærri en nú er og úrkoman 22,6% meiri. Framtíðarloftslagið á Akureyri mun líkjast því sem nú er í Borgarnesi.