Óháðu rússnesku rannsóknarmiðlarnir Novaya Gazeta og Verstka skýra frá þessu og segja að maðurinn hafi ráðist á unnustu sína og stungið hana með hnífi. Þegar vinur hans reyndi að stöðva árásina, réðst maðurinn á hann og stakk hann til bana.
Hann var dæmdur í átta ára fangelsi 2020 fyrir að hafa stungið kunningja sinn til bana. Honum var þó sleppt úr fangelsi 2022 þegar hann gekk til liðs við Wagner. Hann fékk síðan sakaruppgjöf eftir að hafa barist í tilskilinn tíma í Úkraínu.
Samkvæmt því sem segir í umfjöllun óháða rússneska miðilsins Mediazona og BBC þá voru tæplega 50.000 fangar fengnir til liðs Wagner í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Fengu fangarnir sakaruppgjöf ef þeir lifðu sex mánuði af á vígvellinum í Úkraínu.