Þekktur ofbeldismaður, Guðmundur Elís Briem Sigurvinsson, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga konu í Vestmannaeyjum byrjun september árið 2021. Mbl.is greinir frá þessu en dómur í málinu hefur ekki verið birtur á vefsíðu dómstólanna.
Guðmundur sló konuna með flötum lófa í andlitið, reif í hár hennar, tók hana kverkataki, þannig að hún átti erfitt með andardrátt, og og hélt henni niðri á meðan hann nauðgaði henni, en hann lét ekki af háttseminni þrátt fyrir að brotaþoli hefði ítrekað beðið hann að hætta.
Guðmundur var til sjós í Vestmannaeyjum og hafði komið í land degi fyrir nauðgunina. Mbl.is birtir eftirfarandi tilvitnun úr dómnum sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjavíkur:
„Óumdeilt er að þegar ákærði og brotaþoli hófu samræði lá fyrir samþykki brotaþola. Hún féll síðan frá þegar ákærði tók að beita hana ofbeldi. Fyrst hafi hann togað í hár hennar og slegið hana utan undir og hún þá beðið hann að hætta því og þau þá haldið áfram að hafa samræði.
Ákærði hafi síðan slegið brotaþola aftur og þá hafi hún viljað hætta. Er ekkert fram komið sem bendir til þess að ákærði hafi mátt ætla að hann mætti halda áfram að slá hana eftir að hún bað hann að hætta því. Í kjölfar þessa beitti ákærði brotaþola grófu ofbeldi, þ.e. tók hana kverkataki þannig að hún átti erfitt með andardrátt og sló hana a.m.k. tvisvar í andlitið á meðan.
Er ekkert fram komið sem bendir til þess að ákærði hafi mátt ætla að brotaþoli hafi verið samþykk því. Kvaðst brotaþoli hafa gefið ákærða það skýrt til kynna að hún vildi hætta samræðinu með orðum og með því að reyna að komast undan honum en hann þá haldið henni niðri, annars vegar með hálstaki og hins vegar með því að halda um mjaðmir hennar á meðan hann hafði samræði við hana, og nýtt sér þannig líkamlega yfirburði sína.“
Auk þriggja ára fangelsis er Guðmundur Elís dæmdur til að greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur.
Árið 2020 var Guðmundur dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur fyrrverandi kærustum sínum. Önnur þeirra var Kamilla Ívarsdóttir sem vakti landsathygli er hún steig fram í viðtali við Kastljós og lýsti ofbeldi Guðmundar Elís gegn sér. Hún deildi jafnframt á Facebook myndum af áverkum eftir hrottalegar árásir hans á hana.
Síðasta árás Guðmundar Elís á Kamillu var á 19 ára afmælisdaginn hennar. DV greindi frá sögu hennar haustið 2022 og þar segir m.a.:
„Frá fjórtán ára aldri þurfti hún að þola gróft ofbeldi af hendi fyrrverandi kærasta síns. Þegar hún var sautján ára réðst hann svo hrottalega á hana að málið var rannsakað í fyrstu sem tilraun til manndráps. Hún hefur kært hann fyrir nokkrar árásir og á enn eftir að dæma í sumum málunum. Kamilla steig hugrökk fram á sínum tíma og vöktu myndir af áverkum og saga hennar óhug hjá þjóðinni.
Í október voru þrjú ár liðin frá árásinni og segist Kamilla vera þakklát fyrir á hvaða stað hún er komin á í dag en segir að dagar hennar einkennist þunglyndi, kvíða, áfallastreituröskun og hræðslu. Hún er með sterkt stuðningsnet og telur sig mjög heppna með fólkið í kringum hana, sérstaklega fjölskylduna.
Í samtali við DV segir Kamilla að hún sé að bíða eftir að komast í endurhæfingu og að dagamunur sé á líðan hennar. „Það er allt svona upp og niður hjá mér. Það er rosalega erfitt að gera plön því ég veit ekki hvernig ég verð. Svo er hann að fara að losna úr fangelsi í næsta mánuði,“ segir hún.
„Lögreglan kærði hann fyrir október árásina árið 2019, því ég var bara sautján ára og hafði ekkert um það að segja en ég er mjög þakklát fyrir það í dag,“ segir hún.“
Einnig hefur komið fram að Guðmundur Elís hélt hnífi uppi að hálsi Kamillu og hótaði að drepa fjölskyldu hennar.
Dómurinn var kveðinn upp þann 5. júní en var birtur á vefsíðu dómstólanna í dag. Dóminn má lesa hér.