Margrét Finney Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og eiginkona hennar eignuðust þríburastúlkur í apríl 2023, fæðingarorlofið sem þær fengu samtals var 18 mánuðir. Margrét segir það mikla hamingju að eignast fjölbura, en jafnframt mikið álag. Segir hún að verulegar breytingar þurfi að koma til svo fjölburaforeldrar geti notið þess að vera í fæðingarorlofi.
Í grein sinni á Vísi rekur Margrét heppni þeirra eiginkvennanna. Spyr Margrét því eðlilega hvort að það þurfi heppni til þess að fæðingarorlof fjölburaforeldra gangi upp? „Það er ýmislegt á þessum lista sem fæst myndu kalla heppni en þetta er raunveruleikinn okkar og það sem hefur gert það að verkum að þetta svokallaða fæðingarorlof okkar gekk upp.“
Dæturnar þrjár fæddust í apríl 2023 eftir rétt rúmlega 27 vikna meðgöngu eða 3 mánuðum fyrir tímann. „Við vorum með stelpurnar okkar í þrjá mánuði á Vökudeild og þær útskrifuðust allar heim með næringarsondu og ein þeirra að auki með súrefni. Þær voru því í raun ennþá innskrifaðar á Vökudeildinni en við komumst heim og sinntum þar sjálfar áfram sondugjöfum og súrefnismeðferð.
Við vorum undirmannaðar frá fyrsta degi heima, dæturnar þrjár en mömmurnar bara tvær. Að geta ekki huggað öll börnin í einu eða sýnt hverju og einu óskipta athygli tekur á. Það þarf að lágmarki 4 hendur til þess að sinna þremur ungabörnum en núverandi skipulag fæðingarorlofs býður ekki upp á það. Við vorum saman í fæðingarorlofi í 8 mánuði og kláraðist réttur okkar því ansi hratt. Eftir það tók við mikið púsluspil varðandi vinnu og dreifingu fæðingarorlofs til þess að geta verið heima þar til stelpurnar fengu dagvistun.“
Fæðingarorlof fyrir fjölburaforeldra er nú 12 mánuðir í fæðingarorlof og við það bætast 3 mánuðir fyrir hvert barn umfram eitt. Tvíburaforeldrar fá því samtals 15 mánuði til að skipta á milli sín og þríburaforeldrar 18 mánuði. Algengt er að fjölburar fæðist fyrir tímann og geta verið ýmsar ástæður fyrir því. Ef barn/börn dvelja á Vökudeild í meira en 7 daga bætist sá tími sem það dvelur þar aftan við fæðingarorlof, eins og Margrét fer yfir.
„Það er engin sanngirni sem felst í því að fæðingarorlof fylgi fæðingu en ekki barni. Í raun fékk elsta dóttir okkar 12 mánuði og því fylgdu 12 greiðslur frá Fæðingarorlofssjóð, sú sem fæddist um 30 sekúndum á eftir henni fékk 3 mánuði og þar með bara 3 greiðslur. Yngsta dóttir okkar, fædd um 50 sekúndum á eftir þeirri elstu, fékk einnig bara 3 mánuði og 3 greiðslur. Þetta er reikningsdæmi sem gengur ekki upp,“ segir Margrét og spyr af hverju það sé öðruvísi að eiga þrjú börn í einu, en þrjú börn í þremur fæðingum.
„Af hverju eru neikvæðar afleiðingar af því að eignast þrjú börn á sömu mínútunni? Ef dætur okkar ættu hver sinn afmælisdaginn hefðu þetta verið 36 mánuðir í fæðingarorlof og 36 greiðslur.
Við dvöldum saman með dætrum okkar á Vökudeild í 3 mánuði. Við fengum fæðingarorlofi framlengt um 3 mánuði samtals fyrir þann tíma. Þarna fylgir fæðingarorlofið hvorki börnunum né foreldrunum, þar sem við vorum tvær og börnin þrjú. Ef einstætt foreldri með eitt barn dvelur á Vökudeild í þennan tíma fær það einnig 3 mánuði, hvernig getur það staðist?“ segir Margrét.
Hún segir fjölburaforeldra ekki marga, en „við verðum að hafa hátt, nýta og taka þátt í þeirri umræðu sem skapast hefur undanfarið í samfélaginu. Við verðum að koma á verulegum breytingum svo að fjölburaforeldrar framtíðarinnar geti notið þess að vera í fæðingarorlofi með börnunum sínum.“
Grein Margrétar má lesa í heild sinni hér.