Eldur logar jarðhæð Höfðatorgs í Borgartúni. Frá þessu greinir Vísir og af myndum að dæma er um talsverðan eld að ræða. Allt tiltækt lið slökkviliðs hefur verið kallað á vettvang og af beinni útsendingu Vísis frá eldsvoðanum má sjá slökkvilið að störfum.
Ekki er búið að staðfesta eldsupptök en heimildir herma að eldur hafi komið upp í bílakjallara Höfðatorgs og þaðan leitað upp í veitingastað sem er rekinn í húsnæðinu.