En það var ekki allt sem sýndist varðandi fjölskylduna því heima hjá henni fóru fram hlutir sem ekki þoldu dagsljós.
Fjölskyldan var virt á Gaza þrátt fyrir að vitað væri að hún tengdist Hamas-hryðjuverkasamtökunum nánum böndum.
Ahmad rak sína eigin læknastofu þar sem hann tók á móti sjúklingum síðdegis, eftir að hann hafði lokið vakt sinni á opinberri heilsugæslustöð á Gaza. Á sinni eigin stofu tók hann að sér minni læknisverk á borð við umskurð. Hann var einnig iman í moskunni í hverfinu og var þekktur fyrir fallega rödd sína þegar hann vitnaði í Kóraninn. Þetta hefur Wall Street Journal eftir nágrönnum hans og íbúum á svæðinu.
Abdullah sást ekki mjög oft en hann hafði starfað sem talsmaður atvinnumálaráðuneytisins á Gaza en því er stýrt af Hamas. Eftir að stríðið braust út síðasta haust, starfaði hann sem lausamaður í blaðamennsku, meðal annars fyrir Palestinian Chronicle sem er staðsett í Washington D.C.
Leyndarmálið eftir vinnu
Þegar feðgarnir komu heim eftir vinnu beið hið skelfilega leyndarmál þeirra á heimilinu. Það er ekki auðvelt að leyna einhverju í Nuseirat, sem var upphaflega sett á laggirnar sem flóttamannabúðir eftir stríð Ísraels og Araba 1948. Nú er þetta orðið mjög þéttbýlt svæði og veggir í mörgum húsum eru svo þunnir að það heyrist vel þegar nágranninn hóstar.
En samt sem áður tókst fjölskyldunni mánuðum saman að leyna því að í íbúð hennar voru þrír ísraelskir gíslar geymdir. Hamasliðar námu þá á brott þegar Hamas gerði hryðjuverkaárás á Ísrael í byrjun október á síðasta ári.
Á upptöku sem ísraleski herinn birti nýlega sést hvað var á heimili fjölskyldunnar. Upptakan var gerð með búkmyndavél hermanns. Á henni sést persneskt teppi á gólfinu, sjónvarp í horninu og sófi upp við vegg og vifta fyrir framan hann.
Þeir voru vistaðir í dimmu, læstu herbergi og virtist enginn hafa uppgötvað það fyrr en ísraelskir sérsveitamenn réðust inn í húsið fyrir rúmum tveimur vikum. Húsið var síðan eyðilagt í loftárás.
Á upptökunni sjást ísraelskir sérsveitamenn ryðjast í gegnum íbúðina með byssur á lofti. Þeir finna síðan gíslana þrjá sem sitja á gólfinu, í nærfötum einum fata. Þeir hafa ekki hugmynd um hvað er að gerast og reyna að fela sig eða leyta skjóls bak við dýnur.
„Gíslunum var haldið föngnum af Abdullah Al-Jamal og fjölskyldu hans á heimili þeirra. Þetta er enn ein sönnunin fyrir meðvitaðri notkun Hamas-hryðjuverkasamtakanna á heimilum almennra borgara og húsum til að halda ísraelskum gíslum föngnum á Gaza,“ sagði ísraelski herinn síðar í yfirlýsingu.
Út frá ísraelsku sjónarhorni þá er þetta dæmi um að það sé Hamas sem ber ábyrgð á að 274 létust og tæplega 700 særðust í bardögum á götu úti eftir að kennsl voru borin á ísraelsku hermennina sem frelsuðu gíslana.