Í tilkynningu frá Isavia kemur fram að gjaldfrjáls tími á Akureyri og Egilsstöðum sé lengdur úr 5 klukkustundum í 14 klukkustundir og þannig sé komið „myndarlega“ til móts við þær athugasemdir og ábendingar sem fram hafa komið í umræðunni um gjaldtökuna.
Bent er á það að á Reykjavíkurflugvelli verði tvö gjaldsvæði – P1 og P2. Á P1 eru fyrstu 15 mínúturnar gjaldfrjálsar en á P2 eru fyrstu 45 mínúturnar gjaldfrjálsar.
Á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum eru eitt gjaldsvæði. Þar eru fyrstu 14 klukkutímarnir gjaldfrjálsir. Eftir það leggst á gjald 1.750 kr. hvern sólarhring. Eftir sjö daga lækkar sólarhringsgjaldið niður í 1.350 kr. og eftir 14 daga lækkar það niður í 1.200 kr.
Í tilkynningunni segir að eingöngu sé hægt að greiða fyrir stæði í gegnum snjallforrit Autopay, í gegnum vefsíðu Autopay og með Parka appinu.
„Ef engin þessara greiðsluleiða er notuð verður reikningur samkvæmt gjaldskrá sendur í heimabanka bíleiganda, að viðbættu 1.490 kr. þjónustugjaldi tveimur sólahringum eftir að ekið er út af bílastæðinu.“
Fram kemur að allar bílastæðatekjur renni til viðkomandi flugvallar og eru ætlaðar til rekstrar og uppbyggingar bílastæða við flugvöllinn.