Ekki er vitað á hverju hann byggir þessa yfirlýsingu en fyrir liggur að NATÓ er nú að undirbúa sig undir hugsanlega árás Rússa á eitthvert eða einhver aðildarríki varnarbandalagsins.
Pútín ræddi við Sergei Karaganov, sem er lýst sem öfgamanni, á ráðstefnunni. Hann hefur meðal annars lagt til að Rússar beiti kjarnorkuvopnum í Úkraínu. Hann ræddi þetta við Pútín sem var greinilega ekki kominn jafn langt í þessari hugsun. Benti Pútín á að Rússar séu með ákveðna áætlun sem segi að ekki skuli beita kjarnorkuvopnum. En hann bætti við að þessi áætlun sé verkfæri og ekki sé útilokað að breytingar verði gerðar á henni.
Því næst sagði hann svolítið sem hljómar í eyrum sumra sem sterk viðvörun til þeirra Evrópuríkja sem styðja Úkraínu með ráðum og dáð: „Við eigum miklu fleiri vígvallarkjarnorkuvopn en til eru í Evrópu, meira að segja þótt Bandaríkin sendi sín. Evrópa hefur ekki komið sér upp aðvörunarkerfi. Á þann hátt er álfan meira eða minna varnarlaus.“
Orðaskak af þessu tagi hefur um langa hríð verið fælingarvopn Pútíns og Rússa, sérstaklega í upphafi innrásarinnar í Úkraínu. Síðan hætti þessi umræða um hríð en nú hefur hún verið tekin upp á nýjan leik og hefur Pútín sjálfur verið meðal þeirra sem hafa rætt þetta.
Aðvaranir og hótanir Pútíns fara ekki fram hjá NATÓ og öðrum. The Daily Telegraph skýrði nýlega frá því að NATÓ sé að undirbúa fimm svokölluð „landhlið“ þaðan sem hægt verður að flytja bandaríska hermenn og búnað hratt í gegnum Evrópu ef Rússar gera innrás.
Þessi hlið eru frá Noregi í gegnum Svíþjóð til Finnlands. Frá Hollandi í gegnum Þýskaland til Póllands, Frá Ítalíu í gegnum Slóveníu, Króatíu og Ungverjaland. Frá Grikklandi í gegnum Búlgaríu til Rúmeníu og frá Tyrklandi í gegnum Búlgaríu til Rúmeníu.