„Við höfum verið heppin að síðustu ár höfum við lagt áherslu á kynjajafnrétti, að auka sýnileika kvenna í opinberum störfum, þar á meðal í stjórnmálum og það hefur borgað sig. Við sjáum meðal annars á þingi að 47,5% þingmanna eru konur sem er hæsta hlutfall í heimi,“ segir Eliza Reid forsetafrú Íslands í viðtali við kanadíska ríkissjónvarpið aðspurð um forsetakosningarnar í ár þar sem athygli vakti að þrjár konur fengu mestan fjölda atkvæða.
Aðspurð segist Eliza fyrst hafa uppgötvað hvernig staða jafnréttismála er hérlendis þegar hún flutti til landsins fyrir rúmum tuttugu árum síðan. Þá sat hún fund í fyrirtækinu sem hún vann hjá með kvenkyns stjórnarformanni fyrirtækisins sem gaf nýfæddu barni sínu brjóst meðan á fundinum stöð.
„Og það var enginn að spá í það, hún stjórnaði bara fundinum á meðan hún hugsaði um barnið og var með það í fanginu. Mér sem ungri konu á þrítugsaldri fannst þetta mjög merkilegt og eftirminnilegt. Og það áhugaverða við þetta er að þetta er konan sem var kjörin forseti Íslands um síðustu helgi,“ segir Eliza. Og Rosemary Barton blaðamaður CBC tekur undir að það sér stórmerkilegt.
Eliza segir þjóðir sem stuðla að kynjajafnrétti njóti meiri velgengni, þær séu friðsamlegri, hamingjusamari og með hærri meðalaldur. Hún segir mikilvægt að vera stöðugt með kynjagleraugum á sér.
Mbl sagði fyrst frá.
„Ég er stolt af því að hafa verið sýnileg og virk manneskja sem notaði rödd sína,“ segir Eliza aðspurð um hverju hún er stoltust af þegar hún lítur yfir ár sín sem forsetafrú. „Og ég segi þetta í samhengi við að ég er innflytjandi á Íslandi og lærði íslensku þegar ég var fullorðin sem þýðir að ég er með hreim og geri margar villur þegar ég tala.“
Eliza segist ekki lengur stressuð við að nota rödd sína til að ræða málefni sem hún telur mikilvæg. „Í byrjun taldi ég mig aðeins hafa platform til að tala þar sem maðurinn minn hafði afrekað eitthvað og ég ætti ekki skilið að nota það,“ segir Eliza. Hún segir okkur fá fjölmörg tækifæri til að tjá okkur og það sé okkar að ákveða að nýta þau tækifæri eða sólunda þeim.
„Við höfum öll áhrif á fólkið í kringum okkur, samfélag okkar, vinnustað, skóla. Okkur ber skylda til að nota röddina okkar og reyna okkar til að ýta hlutunum í rétta átt.“
Aðspurð um hvort hún hafi áhuga á að bjóða sig fram í stjórnmálum segist Eliza elska stjórnmál. „En allavega ekki í augnablikinu, við sjáum hvað gerist í framtíðinni. Ég þarf að fara yfir síðustu átta ár og hvað ég hef lært, sem hefur verið frábært ævintýri.“
Barton segir að þetta geri stjórnmálamaður, hann loki aldrei hurðinni á einhver tækifæri og hún ætli að fylgjast með Elizu og hafa samband seinna.