Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til þeirra sem hafa kunna að hafa upplýsingar um skemmdarverk á bílum lögreglu að hafa samband.
Í færslu á Facebook-síðu sinni segir lögregla að undanfarnar nætur hafi verið unnin skemmdarverk á lögreglubílum aftan við Brekkustíg 39. Þar hefur bílum lögreglu verið lagt á milli verkefna.
„Búið er að brjóta hliðarrúður í 3 bílum eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmyndum. Ef einhver hefur upplýsingar um málið þá má hinn sami endilega vera í sambandi við okkur,“ segir lögregla í færslu sinni.