Héraðssaksóknari hefur ákært þá Sigurð Frey Árnason og Árna Sigurð Guðmundsson fyrir fjársvik, en til vara umboðssvik, í tengslum við sölu á aflahlutdeild.
Eru mennirnir sakaðir um að hafa blekkt seljanda aflahlutdeildar fyrir krókabát til að selja kvótann sinn á 3.365.550 kr. lægra verði en var raunvirði kvótans.
Sigurður er löggiltur skipasali og eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Safír miðlun ehf. Árni er starfsmaður fyrirtækisins. Safír miðlun annaðist sölu á þorskkvóta brotaþolans og sannfærðu þeir Sigurður og Árni brotaþolann um að verðmæti kvótans væri 1.900 kr. kílóið. En á sama tíma sannfærðu þeir kaupandann um að kaupa kvótann á 2.050 kr. kílóið. Um var að ræða 22.437 kg af þorski. Brotaþoli seldi Safír miðlun kvótann á 42.630.300 kr. en kaupandi kvótans greiddi Safír miðlun 45.995.850 kr. fyrir kvótann.
Segir héraðssaksóknari að þarna hafi þeir tvímenningar, sem fulltrúar Safír miðlunar, misnotað aðstöðu sína með því að leyna raunverulegu söluverði kvótans og afla Safír miðlunar ávinnings upp á 3.365.550 kr.
Árið 2018 var Sigurður Freyr Árnason sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að draga sér andvirði kvóta sem hann leigði fyrir tengdaföður sinn án hans vitundar. Nam fjárdrátturinn samtals tæplega sex milljónum króna.
Greint var frá málinu í Morgunblaðinu á sínum tíma. Sigurður sá um umsýslu með aflaheimildir fyrir félög fyrrverandi tengdaföður síns, meðal annars á grundvelli tengsla þeirra. Brotið kom í ljós þegar tengdafaðirinn ætlaði að selja krókaaflaheimildir í eigu félags síns, en við söluna uppgötvaði hann að það magn aflaheimilda sem hann taldi félag sitt eiga var ekki til staðar, þar sem búið var að selja hluta þeirra án vitneskju tengdaföðurins. Andvirðið hafði Sigurður lagt inn á eigin reikning.
Var Sigurður dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þetta brot.
Málið sem hér um ræðir, gegn þeim Sigurði og Árna, verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 14. júní næstkomandi. Krefst héraðssaksóknari þess að þeir félagar verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.