Hann er ákærður fyrir að hafa til um fíkniefnaneyslu sína þegar hann keypti sér skotvopn í vopnaverslun í Wilmington í Delaware 2018. Ef hann verður fundinn sekur um það, á hann allt að 25 ára fangelsi yfir höfði sér.
Kathleen Buhle, fyrrum eiginkona hans, bar vitni í síðustu viku og skóf hún ekki utan af hlutunum þegar kom að fíkniefna- og áfengisneyslu Hunter.
Jótlandspósturinn segir að hún hafi greinilega verið í miklu uppnámi þar sem hún sat í vitnastúkunni. Hún skýrði frá því að hún hefði fundið krakkpípu Hunter í fyrsta sinn í öskubakka á heimili þeirra.
Hunter var rekinn úr flotanum 2014 eftir að hafa verið undir áhrifum kókaíns. Kathleen hafði því grun um að hann notaði eiturlyf áður en hún fann pípuna. „Ég var auðvitað hrædd og áhyggjufull,“ sagði hún og lýsti því hvernig hún hafði alltaf leitað að fíkniefnum í bíl þeirra hjóna áður en börnin þeirra fengu að fara í hann.
Verjandi Hunter spurði hana hvort hún hefði sjálf séð hann neyta fíkniefna en það hafði hún ekki. Þegar verjandinn spurði hana hvernig hún vissi þá að hann notaði fíkniefni sagði hún að hann hefði sjálfur sagt henni það.
Verjandinn sagði að Hunter hafi ekki talið sig vera fíkniefnaneytanda þegar hann keypti skammbyssuna og því hafi hann ekki logið þegar hann setti nei við spurninguna um hvort hann væri fíkniefnaneytandi.
Það er svo annað mál hvort kviðdómurinn kaupi þessa skýringu.