fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Árni birtir athyglisverða mynd af höfuðstöðvum fyrirtækis sem selur áfengi hér á landi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 29. maí 2024 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Guðmundsson forvarnarsérfræðingur birti athyglisverða mynd á Facebook-síðu sinni í gær.

„Samkvæmt Google maps þá eru þetta erlendar höfuðstöðvar eins af þeim fyrirtækjum sem þverbrjóta lög um smásölu áfengis hérlendis. Myndin segir meira en þúsund orð,“ segir Árni sem nefnir þó ekki nafn fyrirtækisins.

Myndin hefur vakið talsverða athygli og segir einn í athugasemdum að myndin minni á húsnæði fyrirtækja sem komu fyrir í Panamaskjölunum.

Vegna einkaleyfis ÁTVR á smásölu áfengis hér á landi mega netverslanir sem sýsla með áfengi ekki vera skráðar á Íslandi. Eru þær því skráðar í öðrum löndum en á sama tíma er lagerinn á Íslandi.

Árni hefur barist gegn netsölu áfengis hér á landi og vakti hann til dæmis athygli fyrr á þessu ári þegar hann kærði sjálfan sig til lögreglu. Hafði Árni keypt bjór á netinu af tveimur vefsíðum sem selja áfengi en með þessu vildi hann láta reyna á lögmæti þess að kaupa áfengi á netinu og fá það afhent á Íslandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögregla kölluð út vegna ágreinings um kött – Hver átti hann?

Lögregla kölluð út vegna ágreinings um kött – Hver átti hann?