Ingvi Örn Ingvason hefur verið ráðinn markaðsstjóri hjá Bílabúð Benna. Hann starfaði áður hjá Bílaumboðinu Öskju sem markaðssérfræðingur fyrir Kia og Honda. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu.
Ingvi Örn hóf nýlega störf sem markaðsstjóri hjá Bílabúð Benna. Hann starfaði áður hjá bílaumboðinu Öskju sem markaðssérfræðingur og sinnti markaðsstarfi fyrir Kia, Honda og notaða bíla.
Ingvi Örn er með 12 ára starfsreynslu í markaðsmálum en starfaði einnig um árabil sem markaðssérfræðingur hjá fjölmiðlafyrirtækinu Torg og þar á undan sem markaðssérfræðingur hjá Skeljungi. Ingvi er með M.Sc. í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum frá Háskólaísland og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Bifröst.
„Ég er mjög ánægður að vera kominn til starfa hjá jafn rótgrónu fyrirtæki eins Bílabúð Benna og fá tækifæri til að vinna með jafn spennandi vörumerki eins og Porsche sem og nýtt vörumerki, KGM. Það eru spennandi tímar fram undan og spennandi bílar á leiðinni hingað til lands. Má þar nefna nýjan alrafmagnaðan Porsche Macan sem er með yfir 600 km drægni og svo alrafmagnaðan Torres frá KGM,“ segir Ingvi Örn.
„Við erum gífurlega ánægð að fá Ingva Örn til starfa til að leiða markaðsstarf okkar og taka þátt í metnaðarfullri uppbyggingu á okkar vörumerkjum og þjónustu,“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna.
Bílabúð Benna var stofnað árið 1975 í Reykjavík og er umboð- og þjónustuaðili fyrir Porsche og KGM. Fyrirtækið rekur einnig Sixt bílaleigu og Nesdekk.