fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Ný stjórn FKA – Öflugt starfsár í vændum

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 18. maí 2024 11:41

Stjórn FKA 2024-2025 frá vinstri neðri röð: Andrea Ýr Jónsdóttir ritari FKA, Unnur Elva Arnardóttir formaður FKA, Jasmina Vajzovic Crnac varakona í stjórn FKA. Efri röð frá vinstri: Guna Mežule varakona í stjórn FKA, Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir ritari FKA, Sandra Yunhong She varakona í stjórn FKA, Guðrún Gunnarsdóttir varaformaður FKA, Helga Björg Steinþórsdóttir, Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir og Grace Achieng. Mynd: Silla Páls

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalfundur Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA var haldinn 15. maí síðastliðinn í Húsi atvinnulífsins og í streymi fyrir félagsstarfið án staðsetningar. Unnur Elva Arnardóttir  formaður FKA er að hefja sitt annað ár sem formaður og í stjórnendahópinn bættust við nýjar konur sem eiga öflugt starfsár í vændum. Afmælisár félagsins heldur áfram og heilmikil dagskrá framundan.

Á fundi nýkjörinnar stjórnar í framhaldi af aðalfundi var kosið í hlutverk varaformanns, ritara og gjaldkera og voru þær Guðrún Gunnarsdóttir varaformaður, Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir gjaldkeri og Andrea Ýr Jónsdóttir ritari endurkjörnar í þau hlutverk félagsins.

Kjörstjórn FKA 2024, framkvæmdastjóri og formaður FKA frá vinstri: Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA, Rakel Jensdóttur, Sara Dögg Davíðsdóttir Baxter, Sunna Rós Þorsteinsdóttir, Iðunn Kristín Grétarsdóttir, Fjóla Friðriksdóttir og Unnur Elva Arnardóttir formaður FKA.
Mynd: Silla Páls

Þær stjórnarkonur sem sitja í stjórn FKA-Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA starfsárið 2024-2025 eru eftirfarandi:  

Formaður Unnur Elva Arnardóttir – forstöðumaður Skeljungi (seinna ár sem formaður).

Varaformaður FKA Guðrún Gunnarsdóttir – framkvæmdastjóri Fastus – Stjórn til tveggja ára. 

Ritari FKA Andrea Ýr Jónsdóttir framkvæmdastjóri Heilsulausna & hjúkrunarfræðingur – Hálfnuð með kjörtímabil í stjórn – eitt ár eftir. 

Gjaldkeri FKA Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, hundaræktandi & eigandi Gæludýr.is og Home&you – Stjórn til tveggja ára. 

Grace Achieng – stofnandi & framkvæmdastjóri Gracelandic – Hálfnuð með kjörtímabil í stjórn – eitt ár eftir.

Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir – eigandi hugbúnaðarfyrirtækisins GET Ráðgjöf ehf. – Stjórn til tveggja ára.

Guna Mežule – rekstrarstjóri TEYA. – Varakona nr. 3 til eins árs.

Helga Björg Steinþórsdóttir – stofnandi og með eigandi AwareGO. Hálfnuð með kjörtímabil í stjórn – eitt ár eftir.

Jasmina Vajzovic Crnac – stjórnmálafræðingur og eigandi IZO ráðgjöf. – Varakona nr. 1 til eins árs.

Sandra Yunhong She – framkvæmdastjóri og eigandi Arctic Star ehf. – Varakona nr. 2 til eins árs.

Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA.
Mynd: Silla Páls

„Félagið vill tryggja tækifæri samfélagsins til að njóta sérfræðiþekkingar og reynslu kvenna, auk þess að vera leiðandi hreyfiafl með fjölbreytta starfssemi víðs vegar um landið,“ segir Unnur Elva Arnardóttur forstöðumaður Skeljungi glöð í bragði eftir aðalfund FKA. „Ég er að hefja mitt annað ár sem formaður FKA. Opnunarviðburður FKA er á dagskrá 5. september og þangað til er heilmargt í gangi hjá félaginu. Dóru Eyland og Bergrúnu Lilju Sigurjónsdóttur sem nú kveðja þakka ég vel unnin störf fyrir félagið og er spennt að hefja starfið með nýrri stjórn þar sem Guna, Jasmina, Sandra koma nýjar inn í varastjórn.“

Unnur Elva Arnardóttir forstöðumaður Skeljungi og formaður fagnaði góðum árangri félagsins.
Mynd: Silla Páls

Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir sviðstjóri fólks, upplýsinga og þróunar hjá Vinnueftirlitinu var fundarstjóri. Rakel Jensdóttir lögmaður og eigandi fyrirtækisins Hvilft Lögfræðiráðgjöf var ritari fundar. Rakel átti sæti í kjörstjórn ársins og með henni Iðunn Kristín Grétarsdóttir, Rakel Jensdóttir, Sara Dögg Davíðsdóttir Baxter, Sunna Rós Þorsteinsdóttir og formaður kjörstjórnar Fjóla Friðriksdóttir.

Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir eigandi og framkvæmdastjóri GET Ráðgjafar ehf. var með flest atkvæði í stjórnarkjöri, Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir með næst flest atkvæði, Guðrún Gunnarsdóttir þriðja inn og taka þær sæti í stjórn FKA til tveggja ára. Næstar inn voru þær Jasmina Vajzovic Crnac, Sandra Yunhong She og Guna Mežule sem eru þær þrjár sem taka varasæti til eins árs í stjórn FKA.

Vill félagið þakka öllum þeim sem tóku þátt í aðalfundi á einhvern hátt sem og frambjóðendum, stjórn og öðrum sem komu að framkvæmd fundar og öllum þeim sem hafa tekið þátt í umræðu um lög félagsins og stefnumarkandi ákvarðanir.

Kveðjustund, nýjar koma inn og aðrar ljúka sinni vakt í stjórn FKA 2023-2024: Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir, Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir, Unnur Elva Arnardóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Dóra Eyland, Helga Björg Steinþórsdóttir, Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir, Andrea Ýr Jónsdóttir og Grace Achieng.
Mynd: Silla Páls
Hanna Gunnlaugsdóttir formaður afmælisnefndar FKA með stórglæsilegar afmælisvarning FKA í tilefni af 25 ára afmæli félagsins.
Mynd: Silla Páls
Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir sviðstjóri svið fólks, upplýsinga og þróunar hjá Vinnueftirlitinu var fundarstjóri.
Mynd: Silla Páls

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögregla kölluð út vegna ágreinings um kött – Hver átti hann?

Lögregla kölluð út vegna ágreinings um kött – Hver átti hann?