Íbúar í Grafarvogi eru orðnir langþreyttir á gatnamótum með hægri rétti sem víða eru í hverfinu en ekki alls staðar. Utanaðkomandi vita oft ekki af þessu og það kemur fyrir að strætisvagnar og jafn vel lögreglumenn virða ekki hægri réttinn, sem hefur verið einkennandi fyrir umferðina í hverfinu um áraraðir.
Þó að hægri réttur sé víða í Grafarvogi er hann í grunninn meginregla umferðarlaga á Íslandi. Í umferðarlögum segir að þegar ökumenn stefna svo að leiðir þeirra skerast á vegamótum, opnum svæðum eða svipuðum stöðum skál sá sem hefur hinn sér á hægri hönd veita honum forgang. Eða eins og sagt var í ökukennslu áður fyrr: Hætta til hægri!
Þessi regla virðist hins vegar oft gleymast því að víðast hvar eru merkingar settar upp við gatnamót, biðskylda eða stöðvunarskylda, eða þá að umferð er stýrt með ljósum. Ef ekkert slíkt er til staðar gildir hægri réttur.
Mikil umræða hefur skapast á meðal íbúa í Grafarvogi um hægri réttinn á samfélagsmiðlum og eru margir orðnir þreyttir á ástandinu. Meðal annars í Rima og Engjahverfum.
„Maður er nú svo sem orðinn vanur því að fólk virði ekki, eða viti ekki af hægri rétti í umferðinni hérna í Grafarvoginum. En er ekki soldið spes að lögreglan gefi bara skít í þessa reglu líka?“ spyr einn íbúinn eftir að hafa verið að keyra frá Engjaskóla. Segir hann að lögreglubíll hafi brunað hiklaust fram hjá. „Vonandi hefur félagi hans í farþegasætinu skammað hann!“ segir íbúinn argur.
Í umræðunum er ekki aðeins kvartað yfir lögreglubílum sem ekki virði hægri réttinn. Einnig strætisvögnum.
„Ég þekki þetta vel hér á Móaveginum við Spöngina, veit ekki hversu oft það er næstum keyrt á mig og svo er bara flautað, strætó t.d virðir aldrei hægri réttinn hérna,“ segir einn íbúi.
Þá er nefnt að það sé mjög ruglandi í Grafarvogi að við sum gatnamótin sé hægri réttur en biðskylda við önnur. Þetta sé sérstaklega ruglandi fyrir fólk sem komi sjaldan inn í hverfið.
„Það getur vissulega verið spennandi fyrir þann sem ekur úr húsagötu út á safngötu, að taka sénsinn á því að ökumaður bíls sem kemur akandi eftir safngötunni frá vinstri, viti að hann á ekki réttinn, en það er samt mjög óráðlegt og „innfæddir“ hafa vit á að taka ekki þá áhættu,“ segir einn. Talar hann um rússneska rúllettu í því samhengi.
Segjast nokkrir Grafarvogsbúar hreinlega vilja leggja hægri regluna niður.
„Þessi hægri regla er auðvitað bara asnaleg fyrir það fyrsta því það á bara að nota biðskyldu þar sem það á við. Löggur eru bara eins og ég og þú og gleyma þessu bulli líka. Ég bý hér í Grafarvogi og virði þetta og kann þetta en svo kemur maður í önnur hverfi og hefur ekki hugmynd um þetta auðvitað. Það á bara að nota umferðarmerkin!“ segir einn íbúinn.