Allt er bókstaflega morandi í flugu í Vatnsendahverfi í Kópavogi þessa dagana. Muna íbúar ekki eftir öðru eins.
Vatnsendahverfi er frekar nýlegt hverfi í Kópavogi, byggt á jörðinni Vatnsenda sem liggur upp að Elliðavatni. Í hverfinu, sem er enn þá í uppbyggingu, mætast sveitin og borgin.
Í íbúagrúbbu hverfisins er mikil umræða um flugurnar og birtar myndir af gerinu. Eru þetta dökkar og nokkuð stórar flugur sem sjást vel þegar þær setjast á veggi.
„Ég man ekki eftir öðru eins þau 10 ár sem ég hef búið hér… og er ég þó “fyrir ofan veg”,“ segir ein kona sem býr í hverfinu.
Önnur, sem er nýflutt í Vatnsendahverfi, segist feginn að heyra að þetta sé ekki venjulegt magn af flugu.
Ekki eru allir íbúar sáttir við þetta. „Algjör vibbi,“ segir ein og „eins og í hryllingsmynd“ segir önnur, „Þær eru líka svo stórar!“ sú þriðja.
Ein kona lýsir því að þetta hafi skemmt fyrir barnaafmæli. Gestirnir hafi þurft að vera inni, að kafna úr hita með lokaða glugga. Segir hún að á því heimili verði ekki blásið til veislu á þessum árstíma aftur.
Maður sem búið hefur lengi í hverfinu, í 24 ár, segir þetta vera mestu fluguna sem hann hafi séð og það sama segir kona sem búið hefur í 33 ár í hverfinu.
Um er að ræða svokallað toppmý sem eru mjög útbreiddar mýtegundir, að sömu gerð og rykmý en mun stærri. Fjöldi fluganna getur orðið gríðarlegur á klaktíma nálægt vötnum.
Eftir þetta stóra maískot mega íbúar hverfisins eiga von á öðru eins seinna í sumar.
„Mér var kennt af nágranna, sem bjó í áratugi við vatnið en er nú látinn, að ef maíflugan frýs þá sé minna af flugu og ég því verið sérstaklega glöð þegar það kemur næturfrost í maí. Stærðin á maískotinu hefur líka áhrif á næstu, oftast tvö, sem verða um sumarið, svo það eru allar líkur á því að næstu verði líka stærri og „skyggi“ á sumarið,“ segir einn íbúinn.