Enok Vatnar Jónsson hefur verið ákærður fyrir tvær grófar líkamsárásir. Frá þessu greinir Vísir.is.
Enok er sjómaður og athafnamaður en hann er þekktur sem unnusti og barnsfaðir Birgittu Lífar Björnsdóttur, áhrifavalds og markaðsstjóra World Class.
Vísir greinir frá því að aðalmeðferð í málinu gegn Enok Vatnar og öðrum ónafngreindum manni hafi farið fram í gær við Héraðsdóm Reykjavíkur. Meint brot var framið sumarið 2022. Eru mennirnir ákærðir fyrir að hafa veist að manni fyrir utan veitingastað við Laugaveg. Þeir hafi kýlt hann ítrekað í andlit, höfuð og líkama, og sparkað ítrekað í hann. Enok er síðan sagður hafa fleygt manninum niður tröppur, ennfremur hafi hann ásamt hinum manninum sparkað í manninn þar sem hann lá og traðkað á höfði hans.
Hin ákæran gegn Enok varðar líkamsárás sumarið 2021 á skemmtistað við Austurstræti í Reykjavík. Er hann sakaður um að hafa slegið mann fjórum höggum í andlit. Hafi maðurinn hlotið af árásinni augntóttargólfsbrot auk verulegrar bólgu yfir hægra auga og höfuðverk.
Enok er krafinn um samtals tvær milljónir í miskabætur vegna þessara tveggja mála auk þess sem héraðssaksóknari hefur krafist þess að hann verði dæmdur til refsingar og greiðslu málskostnaðar.