Síðastliðinn þriðjudag, 23. apríl, stóð til að fréttaskýringaþátturinn Kveikur myndi sýna innslag fréttakonunnar Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur sem hafði verið í vinnslu í langan tíma. Af því varð þó ekki og hefur sú ákvörðun dregið dilk á eftir. Í gær var greint frá því að María Sigrún væri hætt í Kveiks-teyminu og gaus upp reiðialda þegar greint var frá því að Ingólfur Bjarni Sigfússon, ritstjóri Kveiks, hefði sagt að hæfileikar Maríu Sigrúnar lægju ekki á sviði rannsóknarblaðamennsku en að hún væri þeim mun betri að lesa upp fréttir.
Ummælin urðu til þess að kollegar Maríu Sigrúnar gripu til varna fyrir hana og spurði fyrrum samstarfsmaður hennar á RÚV, Guðfinnur Sigurvinsson, hvassra spurninga, um hvaða efni María Sigrún var búin að vinna umfjöllun um en ekki var sýnd. Þá spurði hann einnig hvort annarleg sjónarmið hefðu ráðið för þegar ákveðið var að sýna ekki þáttinn.
Heimildir DV herma að umfjöllun Maríu Sigrúnar hafi snúið að meintum gjafagjörningi Reykjavíkurborgar til olíufélaga.
Í júní 2021, í skugga sólar ef svo má segja, skrifaði Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, undir samning við við Festi og Krónuna, Olíuverslun Íslands og Haga og Skeljung um nýtt hlutverk bensínstöðvalóða í þeirra eigu. Alls var um að ræða tólf lóðir á úrvalsstöðum í borginni, svokallaður fyrsti fasi í fækkun bensínstöðva í borgarlandinu, en samningurinn var strax afar umdeildur. Auk nýrra lóða undir starfsemi sína fengu olíufélögin gefins byggingarétt á lóðunum sem í fólust gríðarleg verðmæti sem hafa bara hækkað síðan.
Nokkur ár voru í að leigusamningar flestra lóðanna myndu renna út og þá hefði Reykjavíkurborg getað leyst til sín lóðirnar fyrir mun lægri upphæð en verðmæti þeirra sagði til um. Var Dagur því gagnrýndur harðlega fyrir gjafagjörning til olíufélaganna.
Þá herma heimildir DV að umfjöllun Maríu Sigrúnar hafi ekki síst beinst að bensínstöð Festi hf. við Ægisíðu 102 en þar er umdeild uppbygging á yfirborðinu sem hefur fallið í grýttan jarðveg hjá íbúum í nágrenninu. Ekki síst fyrir gríðarlegt byggingarmagn sem er á teikniborðinu í þessu gróna, lágreista hverfi.
Hvaða uppljóstranir koma til með að koma fram í þættinum skal ósagt látið en María Sigrún hefur þó gefið það út að vonir hennar standi til að þátturinn verði sýndur á öðrum vettvangi innan RÚV, það er að segja Kastljósi. Það gæti þó dregist eitthvað, jafnvel fram á haust.