Frásögn annars þeirra á samfélagsmiðlinum TikTok hefur vakið talsverða athygli en þar segir ungi maðurinn, sem kallar sig Busman Zak, frá slysinu á tilfinningaþrungin hátt.
„Myndböndin mín fjalla vanalega um eitthvað skemmtilegt sem tengist rútum. Ég er á Íslandi á því sem átti að vera síðasti dagur ferðar okkar,“ sagði Zak í myndbandinu sem tekið var upp síðastliðinn mánudag.
Zak og kærasti hans, Elliott, lentu hér á landi síðastliðinn föstudag og tóku bíl á leigu og ætluðu að njóta Íslands yfir eina langa helgi. Á föstudeginum fóru þeir gullna hringinn og sáu meðal annars hraunbreiðurnar sem myndast hafa í gosunum síðustu misseri.
„Um klukkan 16:15 vorum við að keyra að hótelinu þar sem við ætluðum að gista fyrstu nóttina,“ segir Zak en á leiðinni þangað varð slysið. Hann segir að bíllinn hafi birst skyndilega og ekki hafi verið neinn tími til að bregðast við yfirvofandi árekstri.
„Elliot og ég erum báðir á lífi. Ég var útskrifaður eftir tvo daga, á sunnudag, en núna er mánudagur sem átti að vera síðasti dagurinn okkar á Íslandi,“ sagði Zak sem grét í myndbandinu þar sem Elliot var enn á sjúkrahúsi vegna innvortis blæðinga. Þurfti hann að gangast undir aðgerð vegna þeirra.
Í gærkvöldi sagðist Zak svo enn vera á Íslandi á meðan Elliot er enn á sjúkrahúsi en þó á góðum batavegi. Hann útskýrir svo að honum hafi þótt gott að tala um slysið, það hafi hjálpað honum að komast yfir þetta mikla áfall. „Karlar geta líka grátið,“ segir hann og bætir við að hann eigi von á því að þeir komist til síns heima eftir helgi.
Í öðru myndbandi í gærkvöldi sýndi Zak svo áverkana sem hann hlaut en hann var marinn og blár víða á líkamanum. Þá sýndi hann fötin sín; gallabuxur, stuttermabol og peysu sem viðbragðsaðilar klipptu utan af honum. Þá sýndi hann myndir af bílnum sem skemmdist mikið eins og myndirnar í myndbandinu hér neðst sýna.
@busman_zakPlease be careful out there.♬ Music Instrument – Gerhard Siagian
@busman_zak Replying to @Charlie Upson not a scratch? I beg to differ. #iceland #crash #survivor #lucky ♬ Mishaps – Lofi-nimation