„Katrín Jakobsdóttir hefur allt sem góðan forseta má prýða: Gáfur, þekkingu á pólitískum innviðum, hún hefur starfað sem forsætisráðherra þegar válegir tímar skullu á þjóðinni og staðið sig frábærlega. Covid-tíminn setti þjóðfélagið á hliðina, gleymum því ekki, og ekki bætti úr skák þegar fór að gjósa á Reykjanesskaga,“ segir Bubbi og heldur áfram:
„Við skulum tala íslensku. Hún er frábær í samskiptum og kann þá list öðrum betur að miðla ólíkum stefnum og sætta ólík sjónarmið. Hún er gríðarlega vel kynnt úti í heimi og eins og heimsástandið er þá þurfum við líka forseta sem þekkir lykilfólk í Evrópu persónulega. Að hafa forseta á Bessastöðum með alla þá reynslu sem Katrín Jakobsdóttir hefur er ómetanlegt,“ segir hann að lokum.